23.04.2010
Framboð til stjórnar
Frestur til að skila inn framboðum til stjórnar fyrir ársfund rann út þann 22. apríl. Á ársfundinum skal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann í stjórn til þriggja ára.
Eftirtaldir gefa kost á sér í aðalstjórn.
Björn Arnar Magnússon, tæknifræðingur.
Gunnar Einarsson, tölvunarfræðingur.
Oddgeir Á. Ottesen, doktor í hagfræði með áherslu á fjármálahagfræði.
Oddur Ingimarsson, læknir og viðskiptafræðingur með áherslu á fjármál fyrirtækja.
Rannveig Einarsdóttir, lyfjafræðingur.
Þá gefur Jón Óli Ólafsson, tölvutæknifræðingur, kost á sér í varastjórn.
Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins árið 2010 verður haldinn fimmtudaginn 29. apríl 2010 á Grand hótel Reykjavík kl. 17:15.
<<Til baka