Beint í leiðarkerfi

Frétt

30.04.2010

Líflegur ársfundur

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins var haldinn á Grand Hótel Reykjavík 29. apríl. Á fundinum var lögð fram skýrsla stjórnar og ársreikningur 2009. Fundurinn var fjölmennur og líflegur.

Breytingar á stjórn
Í Almenna lífeyrissjóðnum sitja eingöngu sjóðfélagar í stjórn sem kosnir eru af sjóðfélögum. Á hverjum ársfundi eru kosnir tveir sjóðfélagar til þriggja ára þannig að stjórnin endurnýjast á þremur árum (árið 2008 voru kosnir þrír stjórnarmenn til 2011 en þá fækkar í stjórn).

Á ársfundin­um voru Oddgeir Ágúst Ottesen og Oddur Ingimarsson kosnir í stjórn til þriggja ára. Úr stjórn gengu Björn Arnar Magnússon og Rannveig Einarsdóttir. Gunnar Einarsson var kosinn varamaður í stjórn í stað Jóns Óla Ólafssonar og Þorkels Erlingsssonar. Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins er þannig skipuð eftir ársfundinn:

Jóhannes Þórðarson Kosinn á ársfundi 2008 til þriggja ára.
Oddur Ingimarsson Kosinn á ársfundi 2010 til þriggja ára.
Oddgeir Ágúst Ottesen Kosinn á ársfundi 2010 til þriggja ára.
Páll Á. Pálsson Kosinn á ársfundi 2009 til þriggja ára.
Sigurbjörn Sveinsson Kosinn á ársfundi 2008 til þriggja ára.
Vilhelmína Haraldsdóttir Kosin á ársfundi 2009 til þriggja ára.
Þorkell Bjarnason Kosinn á ársfundi 2008 til þriggja ára.

Til vara:
Björn Th. Árnason Kosinn á ársfundi 2008 til þriggja ára.
Eiríkur Þorbjörnsson Kosinn á ársfundi 2009 til þriggja ára.
Gunnar Einarsson Kosinn á ársfundi 2010 til þriggja ára.

Aðrar ákvarðanir ársfundar
Samkvæmt tillögu stjórnar sjóðsins var samþykkt að lækka lífeyrisréttindi í samtryggingarsjóði hlutfallslega þann 1. júní 2010 um 12%. 

Fundurinn samþykkti tvær breytingar á samþykktum séreignarsjóðs samkvæmt tillögu stjórnar. Beiðnir um flutning milli ávöxtunarleiða verða framvegis afgreiddar mánaðarlega eða í lok næsta mánaðar eftir að beiðni berst. Beiðnir um eingreiðslur úr séreignar­sjóði verða framvegis afgreiddar um mánaðarmót eða um miðjan mánuð. 

Fundurinn felldi tillögu um ályktun fundarins um að sitjandi stjórnarmenn, sem sátu í stjórn fyrir bankahrun, skyldu segja af sér. 

Fundurinn felldi tilmæli til sjórnar um að laun stjórnar, framkvæmdastjóra, fjárfestingarstjóra og sjóðstjóra yrðu lækkuð um 20%. 

Fundurinn samþykkti ályktun um að beina því til stjórnar að óska eftir upplýsingum frá skilanefnd Glitnis um mótaðila á framvirkum gjaldmiðlavarnarsamningum.

Gögn frá ársfundinum
Ársskýrsla 2009
Ræða Páls Ásgeirs Pálssonar, formanns stjórnar
Glærur Páls Ásgeirs Pálssonar, formanns stjórnar
Glærur Gunnars Baldvinssonar, framkvæmdastjóra, um ársreikning og tryggingafræðingalega stöðu
Glærur Helgu Indriðadóttur um fjárfestingarstefnu og ávöxtun 2009
Glærur Gísla Hlíðbergs Guðmundssonar, formanns endurskoðunarnefndar
Fundargerð ársfundar


<<Til baka