Beint í leiðarkerfi

Frétt

06.05.2010

Ávöxtun á fyrsta ársþriðjungi 2010.

 

Ávöxtun á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010 hefur einkennst af lækkandi vöxtum á innlendum markaði og töluverðum sveiflum á erlendum hlutabréfamörkuðum.

Ágæt ávöxtun hefur verið á löngum verðtryggðum ríkisskuldabréfum og hefur ávöxtunarkrafa þeirra lækkað frá ársbyrjun. Ávöxtunarkrafa langra verðtryggðra íbúðarbréfa (HFF 44) stendur nú í 3,68%.

Ávöxtun óverðtryggðra ríkisbréfa hefur einnig verið með ágætum og ávöxtunarkrafa ríkisbréfa hefur einnig lækkað frá áramótum. Ávöxtunarkrafa stuttra óverðtryggðra ríkisbréfa (RIKB 11) stendur nú í 5,77%

Lækkun markaðsvaxta hefur skilað sér í hækkun á gengi skuldabréfasafna Almenna, t.d. stutta og langa Ríkissafnsins og hafa þau söfn hækkað um 3,3 – 3,4% á fyrstu fjórum mánuðum ársins.

Búast má við að vextir á markaði verði áfram tiltölulega lágir og jafnframt er því spáð að Seðlabanki Íslands muni lækka stýrivexti sína enn frekar. Almenn vaxtalækkun á markaði hefur einnig áhrif á ávöxtun Innlánasafnsins en hún hefur þó verið nokkuð stöðug undanfarið og hefur Innlánasafnið hækkað um 3,2% frá áramótum. Verðbólga á fyrstu 4 mánuðum ársins er 1,9% og hefur vísitala neysluverðs hækkað sem því nemur.

Ágæt ávöxtun hefur verið á Ævisöfnum Almenna frá áramótum og hafa Ævisöfn I og II hækkað um 2,5%, Ævisafn III hefur hækkað um 1,6% og Ævisafn IV hefur hækkað um 2,9%. Í þessum tölum er búið að taka tillit til falls Byrs sparisjóðs í lok apríl.

Síðari hluti aprílmánaðar hefur einkennst af miklum sveiflum og nokkrum lækkunum á erlendum hlutabréfamörkuðum sem m.a. má rekja til ótta fjárfesta við versnandi efnahagsástand í nokkrum Evrópuríkjum, m.a. Grikklandi. Frá áramótum hefur heimsvísitala hlutabréfa hækkað um 3,3% í USD (5,5% hækkun í ISK).

Nafnhækkun safna Almenna fyrstu 4 mánuði ársins:

Ævisafn I

Ævisafn II

Ævisafn III

Ævisafn IV

Innlánasafn

Ríkissafn langt

Ríkissafn stutt

Samtryggingar­- sjóður

2,5%

2,5%

1,6%

2,9%

3,2%

3,4%

3,3%

2,3%

Nafnhækkun safna Almenna síðastliðið 1 ár:

Ævisafn I

Ævisafn II

Ævisafn III

Ævisafn IV

Innlánasafn

Ríkissafn langt

Ríkissafn stutt

Samtryggingar­ sjóður

13,8%

12,0%

-1,4%

3,0%

12,9%

18,6%

7,0%

10,7%

Góð áhættudreifing eigna sjóðsins

Ágæt áhættudreifing er í eignum sjóðsins og unnið hefur verið markvisst að því undanfarið að draga úr áhættu, m.a. með því að auka vægi ríkisskuldabréfa, innlána og sveitarfélagabréfa í blönduðum skuldabréfasöfnum lífeyrissjóðsins. Nú er svo komið að þessir flokkar skuldabréfa vega um 76% af innlendum skuldabréfum sjóðsins.

Jafnframt er það stefna sjóðsins að halda þeim erlendu eignum sem sjóðurinn átti fyrir gildistöku núgildandi gjaldeyrishafta, þær eru mikilvægur þáttur í áhættudreifingu sjóðsins og hafa sannað gildi sitt í því kerfishruni sem orðið hefur á Íslandi. Þá hefur erlendum ríkisskuldabréfum verið bætt við í fjárfestingarstefnu sjóðsins og eru þau nú hluti af erlendri verðbréfaeign. Erlend verðbréfaeign sjóðsins skiptist í hlutabréf (68%), ríkisskuldabréf (14%), framtaksfjárfestingar (15%) og gjaldeyri (3%).




<<Til baka