12.05.2010
Mikil hækkun réttinda frá 1998
Þrátt fyrir lækkun lífeyrisréttinda á síðustu tveimur árum hafa lífeyrisréttindi sjóðfélaga í Almenna lífeyrissjóðnum og forverum hans hækkað um 147% frá árinu 1998. Á sama tíma hækkaði launavísitala um 119% og vísitala neysluverðs um 96%.
Lögbundin réttindi
Núverandi lög um starfsemi lífeyrissjóða tóku gildi þann 1. júlí 1998.
Í lögunum eru skilgreind lágmarksréttindi sem sjóðir þurfa að tryggja til að fá starfsleyfi.
Lífeyrissjóðir skulu tryggja sjóðfélögum verðtryggðan ellilífeyri til æviloka, greiða örorku- og barnalífeyri ef starfsgeta minnkar og greiða maka- og barnalífeyri við fráfall sjóðfélaga.
Almenni lífeyrissjóðurinn uppfyllir þessi skilyrði og rúmlega það. Sjóðurinn nýtur þess að örorkutíðni sjóðfélaga er mjög lág og þess vegna getur hann varið hærri hluta iðgjalds til að greiða eftirlaun. Sjóðurinn greiðir auk þess hærri örorku- og barnalífeyri en lágmark samkvæmt lögum.
Hækkun þrátt fyrir skerðingu
Þrátt fyrir lækkun réttinda á síðustu tveimur árum hafa Almenni lífeyrissjóðurinn og forverar hans hækkað lífeyrisréttindi verulega umfram verðlag og laun frá árinu 1998.
Lífeyrisréttindi sjóðfélaga í Almenna lífeyrissjóðnum hækkað um 147% frá árinu 1998. Á sama tíma hækkaði launavísitala um 119% og vísitala neysluverðs um 96%.
Lífeyrisréttindi hafa hækkað um 20%-50% umfram verðbólgu.

|
Frá árinu 1998 hafa lífeyrisréttindi sjóðfélaga í Almenna lífeyrissjóðnum hækkað um 147% og meira en launavísitala og vísitala neysluverðs.
Á myndinni hafa lífeyrisréttindi hópa verið vegin saman. |
Hópar hafa hækkað misjafnlega mikið
Hækkun lífeyrisréttinda er mismunandi mikil eftir hópum og skýrist af því að réttindi í eldri lífeyrissjóðum voru ólík. Réttindi lækna hafa hækkað minnst og er skýringin sú að lífeyrisréttindi í Lífeyrissjóði lækna voru hlutfallslega ,,dýr“ vegna ævilangs makalífeyris.
|
Hækkun ellilífeyris umfram verðlag 1998-2010 |

|
Þrátt fyrir áföll 2008 og 2009 hafa réttindi hækkað verulega umfram verðlag frá 1998 eða á bilinu 20% til 50%.
Mismunandi réttindi í eldri lífeyrissjóðum skýra mun á milli hópa.
|
Lesa meira
Gleymum ekki því sem vel hefur tekist.
Arkitektar. Réttindabreytingar og þróun lífeyris, launa og verðlags.
Læknar. Réttindabreytingar og þróun lífeyris, launa og verðlags.
Tæknifræðingar. Réttindabreytingar og þróun lífeyris, launa og verðlags.
Aðrir. Réttindabreytingar og þróun lífeyris, launa og verðlags.