31.05.2010
Breytingar á lífeyrisréttindum 1. júní
Þann 1. júní 2010 lækka lífeyrisréttindi um 12% eins og samþykkt var á ársfundi sjóðsins. Lækkunin gildir jafnt fyrir þá sem njóta lífeyris úr sjóðnum og þá sem eiga geymd lífeyrisréttindi (hafa ekki hafið töku lífeyris).
Almenni lífeyrissjóðurinn harmar þessa lækkun sem er óhjákvæmileg vegna tryggingarfræðilegrar stöðu sjóðsins sem hefur versnað vegna efnahagsáfallsins.
Lífeyrisréttindi eru verðtryggð og hækka mánaðarlega með breytingu á vísitölu neysluverðs. Til langs tíma breytast réttindi í takt við afkomu sjóðsins. Frá því lífeyrissjóðalögin tóku gildi árið 1998 hafa lífeyrisréttindi í Almenna lífeyrissjóðnum og forverum hans hækkað mikið þrátt fyrir lækkanir síðustu tvö ár.
Lesa nánar.
<<Til baka