31.05.2010
Skuldabréf á góðum kjörum
Tilkynnt var í morgun að lífeyrissjóðir hefðu keypt verðtryggð ríkisskuldabréf af Seðlabanka Íslands fyrir um 88 milljarða. Skuldabréfin eru að jafnaði til níu ára og eru keypt á ávöxtunarkröfunni 7,2% sem er umtalsvert hærri krafa en hægt er að kaupa sambærileg skuldabréf á markaði. Lífeyrissjóðirnir greiða fyrir skuldabréfin með evrum og þurfa að selja erlend verðbréf til að kaupa skuldabréfin.
Almenni lífeyrissjóðurinn tók þátt í þessum viðskiptum og keypti ríkisskuldabréf fyrir 4,7 milljarða. Það þýðir að sjóðurinn mun selja um 18-19% af erlendum verðbréfum. Ávöxtunarleiðir sem fjárfesta í erlendum verðbréfum eignast bréfin, þ.e. Ævisafn I, Ævisafn II, Ævisafn III og samtryggingarsjóður. Vegna hárrar ávöxtunarkröfu mun ávöxtun þessara safna hækka auk þess sem tryggingafræðileg staða samtryggingarsjóðs batnar um rúmt 1%.
Frá því að efnahagshrunið á Íslandi skall á og gjaldeyrishöft voru sett á hefur Almenni lífeyrissjóðurinn haft þá stefnu að selja ekki erlendar eignir sjóðsins vegna áhættudreifingarsjónarmiða. Stjórn sjóðsins taldi hins vegar að tilboð Seðlabankans væri það gott að ekki væri hægt að hafna því. Viðskiptin lækka hreinar skuldir ríkissjóðs í erlendri mynt og skapa því skilyrði til að flýta afnámi gjaldeyrishafta. Sjóðurinn stefnir að því að auka aftur erlendar eignir um leið og gjaldeyrishöft verða afnumin.
Fréttatilkynning Landssamtaka lífeyrissjóða.
Fréttatilkynning Seðlabankans.
<<Til baka