15.06.2010
Hlé fram í september
Hlé verður á rabbfundum fyrir sjóðfélaga í sumar. Áformað er halda næsta fund þann 23. september og fjalla þá um eignir og ávöxtun. Hægt er að skrá þátttöku hér.
Í júní 2009 hóf Almenni lífeyrissjóðurinn að auglýsa rabbfundi fyrir sjóðfélaga í húsnæði sjóðsins. Á rabbfundunum geta sjóðfélagar hitt stjórn og starfsmenn og spurt spurninga eða rætt um málefni sjóðsins. Með fundunum vill sjóðurinn auka gegnsæi, efla umræður og bjóða sjóðfélögum að koma á framfæri ábendingum eða hugmyndum. Stefnt er að því að halda einn rabbfund í mánuði og eru þeir auglýstir á vefsíðu sjóðsins og með netpóstum til sjóðfélaga sem hafa skráð netfang sitt hjá sjóðnum (ef þú hefur ekki skráð netfangið þitt getur þú gert það hér).
Sjóðfélagar eru hvattir til að fylgjast með rabbfundunum á heimasíðu sjóðsins og mæta ef þeir vilja fá upplýsingar eða koma ábendingum á framfæri við sjóðinn. Við þiggjum líka ábendingar um fundarefni og svo erum við líka tilbúin að taka á móti sjóðfélögum sem vilja koma í heimsókn á öðrum tímum og ræða málin. Einnig erum við tilbúin að koma á vinnustaði sé þess óskað. Hringið í síma 510-2500 eða sendið póst á almenni@almenni.is.
<<Til baka