28.06.2010
Nýr launagreiðendavefur
Almenni lífeyrissjóðsins hefur tekið í notkun launagreiðendavef þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar um iðgjaldaskil til sjóðsins. Á síðunni er m.a. hægt að;
- skoða innsendar skilagreinar,
- senda skilagreinar til sjóðsins og stofna kröfu í netbanka,
- skoða greiðslustöðu vegna innsendra skilagreina og
- taka út yfirlit um iðgjöld launþega.
Fljótlega verður einnig hægt að merkja við ef launagreiðandi vill að stofnuð verði krafa í netbanka þegar send er inn xml skilagrein.
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur sent bréf með lykilorðum til rúmlega 3000 launagreiðenda sem greiða iðgjöld í sjóðinn. Launagreiðendur geta sótt um aðgang að vefnum hér.
<<Til baka