Beint í leiðarkerfi

Frétt

19.07.2010

Íslenskir lífeyrissjóðir í öðru sæti

Efnahags- og framfarastofnunin OECD hefur birt skýrslu um lífeyrissjóði aðildarríkja stofnunarinnar. Í skýrslunni kemur fram að Ísland er í öðru sæti ef eignir lífeyrissjóða eru settar í hlutfall við landsframleiðslu.

Efnahags- og framfarastofnunin OECD hefur birt skýrslu um lífeyrissjóði aðildarríkja stofnunarinnar. Þar segir m.a. að áhrif fjármálakreppunnar á bæði einkarekna og opinbera lífeyrissjóði séu enn greinileg og að fjárfestingatap ársins 2008 hafi ekki skilað sér að fullu, þrátt fyrir hægfara bata á verðbréfamörkuðum. Skýrsluna má lesa hér.

Efnahags- og framfarastofnunin segir íslenska lífeyrissjóðakerfið vera eitt af fáum sem hafa náð sér að fullu eftir efnahagshrunið. Því til staðfestingar bendir stofnunin á að heildareignir íslenskra lífeyrissjóða hafi verið rúmum þremur prósentum hærra í lok árs 2009 en það var í árslok 2007. Rétt er að hafa í hug að í þeim tölum er ekki tekið tillit til þess að eignaaukningin er að hluta vegna þess að iðgjöld árin 2008 og 2009 voru meiri en lífeyrisgreiðslur.

Í skýrslunni eru eignir lífeyrissjóða aðildarríkjanna bornar saman við landsframleiðslu til að meta fjármögnun þeirra. Þar er Ísland langt yfir meðaltali en eignir íslenskra lífeyrissjóða í árslok 2009 voru 118,3% af landsframleiðslu ársins. Vegið meðaltal eigna lífeyrissjóða í aðildarríkjum OECD er hins vegar um tveir þriðju landsframleiðslu. Aðeins Holland er með hærra hlutfall en Ísland, eða tæp 130 prósent landsframleiðslu.

Sjá mynd fyrir neðan. 




<<Til baka