Beint í leiðarkerfi

Frétt

29.07.2010

Ný forsíða

Í dag for í loftið ný forsíða á heimasíðu Almenna lífeyrissjóðsins. Markmiðið er að efla þjónustu við sjóðfélaga með því að bæta aðgengi að upplýsingum um lífeyrisréttindi og þjónustu sjóðsins. Nýja forsíðan er einföld og aðgengileg. Efst á síðunni eru borðar sem vísa á helstu þjónustuþætti sjóðsins en fyrir neðan og í kring eru borðar inn á helstu upplýsinga- og þjónustusíður.

Fyrr á árinu opnaði sjóðurinn launagreiðendavef fyrir launagreiðendur, sjóðfélagavef fyrir sjóðfélaga, auk þess sem við reynum stöðugt að uppfæra þjónustusíður og bæta við upplýsingum um sjóðinn og ávöxtunarleiðir.

Launagreiðendavefur opnaði í júní

Almenni lífeyrissjóðsins opnaði í júní launagreiðendavef þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar um iðgjaldaskil til sjóðsins. Launagreiðendavefurinn hefur fengið mjög góðar viðtökur hjá launagreiðendum og þeim starfsmönnum sem sjá um greiða iðgjöld til sjóðsins. Á honum er m.a. hægt að;

· skoða innsendar skilagreinar,

· senda skilagreinar til sjóðsins og stofna kröfu í netbanka,

· skoða greiðslustöðu vegna innsendra skilagreina og

· taka út yfirlit um iðgjöld launþega.

Sjóðfélagavefur opnaði í febrúar

Almenni lífeyrissjóðurinn opnaði nýjan sjóðfélaga­vef í febrúar. Á hon­um geta sjóðfélagar skoðað upplýsingar um lífeyrisréttindi og gert ýmsar aðgerðir.

Á sjóðfélagavefnum eru upplýsingar um;

· greidd iðgjöld og ráðstöfun þeirra

· inneign í séreignarsjóði og ávöxtunarleiðir

· áætlaðan ellilífeyri til æviloka

· örorku-, maka- og barnalífeyri

· lífeyrisgreiðslur og launaseðla

· aðra lífeyrissjóði sem greitt hefur verið í áður

· og fleira.

Á sjóðfélagavefnum er hægt að;

· breyta ráðstöfun iðgjalda

· gera eignabreytingar

· prenta einföld eða sundurliðuð yfirlit

· afþakka pappírsyfirlit

· breyta um lykilorð

· skrá netfang á póstlista

· og fleira.

Til þess að komast inn á sjóðfélaga­vefinn þurfa sjóð­félagar lykilorð sem kemur fram á yfirlitum. Sjóðfélagar sem hafa ekki fengið sent lykilorð geta haft sam­band við skrifstofu sjóðsins.

Reiknivélar uppfærðar

Á árinu er búið að yfirfara og endurhanna eftirfarandi reiknivélar.

· Lífeyrissparnaður. Reiknar inneign lífeyrissparnaðar fyrir og eftir skatta ásamt mánaðarlegri útborgun eftir skatta miðað við mismunandi forsendur um fjárhæðir og ávöxtun.

· Óskalífeyrir. Reiknar hvað þarf að leggja fyrir til að tryggja ákveðnar tekjur í starfslok, hver eign þarf að vera í lok sparnaðartíma og hvað leggja þarf fyrir á mánuði til þess að ná settu marki.

· Útborgun séreignarsjóðs. Reiknar mánaðarlegar tekjur fyrir og eftir skatta af inneign miðað við ólíkar forsendur um útborgunartíma og vexti.

· Greiðslubyrði lána. Reiknar áætlaða greiðslubyrði lána miðað við mismunandi forsendur.

Ábendingar og hugmyndir vel þegnar

Markmið okkar með heimasíðunni er að sjóðfélagar geti leitað þangað eftir þjónustu og upplýsingum. Við þiggjum við allar ábendingar um það sem betur má fara eða um gagnlegar viðbætur. Hringið í síma 510-2500 eða sendið okkur ábendingar á netfangið almenni@almenni.is.


<<Til baka