30.08.2010
Séreign skerðir ekki atvinnuleysisbætur
Sjóðfélagar 60 ára og eldri, sem hafa fengið skertar atvinnuleysisbætur, vegna greiðslna úr séreignarsjóðum, frá 1. mars 2009, geta nú sótt um endurgreiðslu.
Ástæða er til að vekja athygli á breytingum sem gerðar voru á lögum um atvinnuleysistryggingar með lögum nr. 70/2010, sem tóku gildi í júní sl.
- Breytingarnar fela m.a. í sér að þeir sem eru 60 ára eða eldri og hafa fengið skertar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði á tímabilinu 1. mars 2009 til dagsins í dag, vegna greiðslna úr séreignarsjóði, geta átt rétt á endurgreiðslu sem nemur fjárhæð skerðingarinnar.
- Þetta á hins vegar ekki við um þá sem eru yngri en 60 ára þar sem greiðslur úr séreignarsjóðum skerða ekki greiðslur til þeirra úr Atvinnuleysistryggingasjóði.
Þeir sem eru 60 ára eða eldri og hafa fengið skertar atvinnuleysisbætur af framangreindum ástæðum geta sótt um endurgreiðslur hjá Atvinnuleysistryggingarsjóði.
Nauðsynlegt er að láta kvittun eða greiðsluyfirlit vegna greiðslna úr séreignarsjóði fylgja með umsókn um endurútreikning.
Til þess að fá endurgreiðslu þarf að sækja sérstaklega um hana. Umsóknarfrestur er til 1. september nk.
<<Til baka