Beint í leiðarkerfi

Frétt

10.11.2011

Rabbfundur um fjárfestingarstefnu

Fimmtudaginn 17. nóvember 2011 kl. 12:00-13:00 efnir Almenni lífeyrissjóðurinn til rabbfundar fyrir sjóðfélaga undir heitinu Fjárfestingastefna. Fundurinn verður haldinn í fundarherbergi sjóðsins í Borgartúni 25, 5. hæð og verður boðið upp á samlokur. Áhugasamir geta skráð þátttöku á hér.

Á fundinum munu sjóðstjórar fara yfir drög að nýrri fjárfestingarstefnu en samkvæmt lögum skulu lífeyrissjóðir endurskoða stefnuna fyrir 1. desember á hverju ári. Fundurinn er kjörið tækifæri fyrir sjóðfélaga til að fá upplýsingar og einnig til að koma með ábendingar ef þeir vilja hafa áhrif á gerð fjárfestingarstefnunnar.


<<Til baka