18.11.2011
Vel heppnaður fundur
Almenni lífeyrissjóðurinn efndi til rabbfundar fyrir sjóðfélaga fimmtudaginn 17. nóvember um fjárfestingarstefnu sjóðsins. Tilgangurinn með fundinum var að veita upplýsingar um fjárfestingarstefnuna og að gefa sjóðfélögum færi á að kynna sér hana og koma með ábendingar og athugasemdir.
Á fundinum fóru sjóðstjórar yfir drög að nýrri fjárfestingarstefnu en samkvæmt lögum skulu lífeyrissjóðir endurskoða stefnuna fyrir 1. desember á hverju ári. Fundurinn var ágætlega sóttur og urðu nokkrar umræður um stefnuna og eignasamsetningu ávöxtunarleiða.
Glærur frá fundinum eru
hér (pdf).
Upplýsingar um fjárfestingarstefnu á heimasíðu eru hér.
Fundurinn var síðasti rabbfundur sjóðsins á árinu og verður nú hlé á fundunum fram yfir áramót.
<<Til baka