Beint í leiðarkerfi

Frétt

25.11.2011

Margir nýta sér heimild

Í nóvember var í fyrsta sinn greiddur út séreignarsparnaður eftir að heimild til úttektar var aukin í 6.250.000 kr. Alls voru greiddar 218 milljónir til rúmlega 800 sjóðfélaga. Almenni lífeyrissjóðurinn hefur þá greitt út samtals 6,5 milljarða til sjóðfélaga vegna tímabundinnar opnunar séreignarsparnaðar frá því að heimildin var fyrst veitt í apríl 2009.

Af séreignarsparnaði í heild hafa verið greiddir rúmlega 60 ma.kr. upphafi eða u.þ.b. 20% af séreignarsparnaði landsmanna. Myndin sýnir yfirlit um útgreiðslur úr Almenna lífeyrissjóðnum vegna heimildarinnar.


(Smelltu á mynd til að stækka)

Á ég að taka út séreignarsparnaðinn minn?
Almennt er ekki ráðlegt að taka út séreignarsparnað en það getur borgað sig fyrir þá sem eru í fjárhagsvandræðum eða hyggjast nota sparnaðinn til að greiða upp lán. Almenni lífeyrissjóðurinn hefur birt tvær greinar á fræðsluvef um um heimildina. Við bendum þeim sem vilja kynna sér málið að lesa þær.

Þraukaðu ef þú getur
Janúar 2011
  • Á ég að taka út séreignarsparnaðinn minn samkvæmt sérstakri heimild um tímabundna opnun viðbótarlífeyrissparnaðar?
Opnun leyfir að snerta
Janúar 2011
  • Borgar sig að taka séreignarsparnað út og greiða niður langtímalán?
  • Hvað þarf að hafa í huga við athugun á því?

<<Til baka