Beint í leiðarkerfi

Frétt

01.12.2011

Fjárfestingastefna 2012

Fjárfestingarstefnan 2012 er mjög ítarleg. Í henni koma fram upplýsingar um uppbyggingu Almenna lífeyrissjóðsins og er fjallað um samtryggingarsjóð og ávöxtunarleiðir séreignarsjóðs. Farið er yfir sögulega áhættu verðbréfa og fjallað um samspil ávöxtunar og áhættu. Í framhaldi af þeirri umfjöllun er sett fram fjárfestingarstefna fyrir allar ávöxtunarleiðir sjóðsins og fjárfestingarheimildir. Sérstakur kafli er um viðmiðanir við kaup á verðbréfum og um áhættustýringu hjá lífeyrissjóðnum.

Helstu breytingar í fjárfestingarstefnu fyrir árið 2012 eru eftirfarandi:

  • Vægi innlendra hlutabréfa í fjárfestingarstefnu blandaðra verðbréfasafna hefur verið aukið en vegur þó tiltölulega lítið af heildareignum hvers safns. Ævisafn I stefnir nú að því að 6% eigna séu innlend hlutabréf, Ævisafn II 4%, Ævisafn III 1,5% og Samtrygg­ingarsjóður 3%.

  • Viðmiðanir við val á verðbréfum sem útgefin eru af innlendum útgefendum öðrum en ríkissjóði eru nú enn ítarlegri. Markmiðið er að draga úr líkum á eignatapi og að auka gegnsæi með því að varpa ljósi á þau skilyrði sem sjóðurinn hefur til viðmiðunar þegar keypt eru innlend verðbréf útgefin af öðrum en íslenska ríkinu.

  • Vegna takmarkaðs framboðs af skráðum verðbréfum hafa viðmiðanir við val á óskráðum verðbréfum verið gerðar ítarlegri. Meðal annars hefur verið bætt við viðmiðunum um skuldabréf fasteignafélaga og fagfjárfestasjóða. Sjóðurinn má þó ekki fjárfesta meira en 20% af eignum í óskráðum verðbréfum.

  • Umfjöllun um áhættustýringu sjóðsins er nú ítarlegri, en slík umfjöllun kom fyrst inn í fjárfestingarstefnuna í fyrra. Mikil áhersla er lögð á víðtækt áhættueftirlit og áhættustýringu hjá sjóðnum. Sjóðurinn hefur skil­greint þrjá meginflokka áhætta sem tengjast eignum sjóðsins, sem eru fjárhagsleg áhætta, lausafjáráhætta og mótaðilaáhætta. Í stefnunni er umfjöllun um þessa áhættuflokka og lýsing á eftirliti sjóðsins.

Sjóðfélagar geta nálgast fjárfestingarstefnuna í heild sinni hér.




<<Til baka