Beint í leiðarkerfi

Frétt

08.12.2011

Vertu skuldlaus á eftirlaunum

Einstaklingar ættu að stefna að því að skulda ekkert þegar þeir fara á eftirlaun. Út frá þessari forsendu ættu þeir ekki að taka hærri langtímalán en sem nemur 1,5-2,5 árslaunum. Í nýrri grein á fræðsluvef er leitast við að svara spurningunum hvað einstaklingar geti skuldsett sig mikið og hvað langtímalán eigi að vera til langs tíma. Greinina má lesa hér.

Nýlegar greinar
Í nóvember, október og september birtust eftirfarandi greinar á fræðsluvefnum sem eru áhugaverðar fyrir sjóðfélaga.

Jafnar afborganir eða greiðslur

Flestir lánveitendur, þ.a.m. Almenni lífeyrissjóðurinn, bjóða lántökum að velja hvort þeir vilja lán með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum. Í greininni er fjallað um muninn á lánum með jöfnum afborgunum og jöfnum greiðslum. Greinina má lesa hér.

Smíðaðu þína eigin gæfu

Í greininni er leitast við að svara spurningunum um hvað er hægt að gera til að ráða eigin starfslokum og tryggja góða afkomu þegar vinnu lýkur. Í henni er að finna fjögur tímalaus ráð til að stuðla að góðum fjárhag og nokkur aldurstengd ráð til að flýta starfslokum. Greinina má lesa hér.

Hvert stefnir?

Nýlegir útreikningar hjá úrtaki sjóðfélaga á aldrinum 50-59 ára sýna að tekjur lækka hjá flestum þegar þeir hætta að vinna. Greinin fjallar um leiðir til að hækka eftirlaunin og um samsetningu eftirlauna þegar vinnu lýkur. Greinina má lesa hér.


<<Til baka