Beint í leiðarkerfi

Frétt

16.12.2011

Lækkun á heimildum til lífeyrissparnaðar

Alþingi samþykkti í desember 2011 að lækka tímabundið heimild launþega til að draga frá skattskyldum tekjum iðgjald til viðbótarlífeyrissparnaðar úr 4% af launum í 2%. Lækkunin gildir á árunum 2012 til 2014 og geta launþegar því hækkað framlag sitt aftur árið 2015.

Einstaklingar þurfa ekki að gera neinar ráðstafanir vegna þessa því samkvæmt lögunum skulu launagreiðendur sjá um að lækka iðgjaldið nema launþeginn óski eftir að greiða áfram hærra iðgjald en 2%. Það er þó almennt ekki ráðlegt vegna tvískattlagningar (iðgjöld umfram 2% greiðast þá skattlögð inn í séreignarsjóð og verða svo sköttuð aftur við úttekt). Launagreiðandi skal einnig sjá um að hækka iðgjaldið aftur í 4% af launum þann 1. janúar 2015 nema launþegi láti vita að hann vilji ekki hækka sparnaðinn aftur. Breytingar á skattalögum og ákvæði sem gilda um lífeyrisiðgjöld í lögum um tekjuskatt má lesa hér.

Lækkun á heimildum til viðbótarlífeyrissparnaðar breytir engu um þá staðreynd að einstaklingar þurfa að leggja fyrir til eftirlaunaáranna til að tryggja sér ásættanleg eftirlaun. Fyrir flesta er lykilatriði að minnka ekki sparnað. Einstaklingar ættu að bregðast við minni heimildum til lífeyrissparnaðar annað hvort með því að auka hefðbundinn sparnað eða með því nýta svigrúm í lögum til að lífeyrissparnaður lækki ekki. Um það má lesa í grein á fræðsluvef sem fjallar um lífeyrissparnað og um reglur sem gilda um lífeyrisiðgjöld. Greinina má lesa hér.


<<Til baka