28.12.2011
Tekjuskattur 2012
Á vef fjármálaráðuneytisins hafa verið birtar upplýsingar um skattheimtu einstaklinga á næsta ári. Á árinu 2012 verður staðgreiðsla tekuskatts eftirfarandi:
|
Skattþrep |
Viðmiðunartekjur á mánuði |
Staðgreiðsluprósenta |
|
1. þrep |
0 -230.000 krónur |
37,34% |
|
2. þrep |
230.001 -704.366 krónur |
40,24% |
|
3. þrep |
Yfir 704.367 krónur |
46,24% |
Persónuafsláttur verður 46.532 krónur á mánuði. Skattleysismörk á mánuði eru því 124.617 krónur.
Tekjuskattur er greiddur af öllum lífeyrisgreiðslum.
- Við útreikning á staðgreiðslu er horft til tekna í þeim mánuði sem lífeyrir er greiddur og því getur borgað sig að dreifa greiðslum á lengra tímabil.
- Staðgreiðslan er reiknuð þannig að greiddur er 37,34% skattur af fyrstu 230.000 krónum, 40,24% skattur af næstu 474.367 krónum og 46,24% af öllum tekjum sem eru umfram kr. 704.367 krónum.
- Ef samtals laun og lífeyrisgreiðslur fara yfir 704.367 krónur í mánuði er greiddur 46,24% af því sem er umfram.
- Ekki er horft til heildartekna á árinu fyrr en við álagningu tekjuskatts í ágúst á hverju ári.
Það er á ábyrgð lífeyrisþega að tilkynna lífeyrissjóðnum um skattþrep sem á að nota. Álagning tekjuskatts fer fram 1 ágúst ár hvert og ef það vantar upp á staðgreiðsluna bætist við 2,5% álag. Við viljum því hvetja sjóðfélaga sem vilja fá upplýsingar um hvernig best er að haga úttekt lífeyris að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins.
Um samsköttun hjóna og sambýlisfólks
Hjón og sambúðaraðilar geta nýtt að fullu persónuafslátt maka við greiðslu tekjuskatts í hverjum mánuði.
Heimilt er að skattleggja hluta tekna maka í skattþrepi 2 í stað skattþreps 3 hafi tekjulægri makinn ekki nýtt skattþrep 2 að fullu. Einstaklingur getur þannig nýtt að hámarki 225.000 krónur af skattþrepi 2 hjá maka. Aldrei er hægt að nýta skattþrep 1 hjá maka. Þegar sýnt þykir að heimild til slíkrar millifærslu hafi skapast geta samskattaðir aðilar óskað eftir endurreikningi á þeirri staðgreiðslu sem innt hefur verið af hendi og jafnframt endurgreiðslu hennar reynist staðgreiðslan of há. Slík endurgreiðsla getur þó ekki komið til fyrr en á síðasta ársfjórðungi og aldrei numið lægri fjárhæð en 50.000 krónum eða hærri fjárhæð en 100.000 krónur.
Upplýsingar á vef fjármálaráðuneytisins.
Orðsending ríkisskattstjóra um staðgreiðslu 2012.
<<Til baka