30.12.2011
Lífeyrir í janúar og 2011
Lífeyrisgreiðslur í janúar verða greiddar sunnudaginn 1. janúar 2012. Það er sama fyrirkomulag og um hver mánaðarmót en á árinu 2011 hóf sjóðurinn að greiða lífeyrisgreiðslur inn á reikninga lífeyrisþega fyrsta dag hvers mánaðar í staðinn fyrir fyrsta virka dag mánaðar.
Lífeyrisgreiðslur aukast milli ára
Árið 2011 greiddi Almenni lífeyrissjóðurinn samtals 4,6 milljarða í lífeyri og skiptust greiðslurnar þannig að 3,7 milljarðar voru greiddir úr séreignarsjóði en 900 milljónir úr samtryggingarsjóði. Í fyrra greiddi sjóðurinn samtals 3,7 milljarða sem skiptust þannig að 2,9 milljarðar voru greiddir úr séreignarsjóði og 887 milljónir úr samtryggingarsjóði.
Lífeyrisgreiðslur jukust um 24% milli ára eða samtals um um 800 milljónir. Aukagreiðslur úr séreignarsjóði samkvæmt tímabundinni opnun skýra aukninguna. Árið 2010 var greiddur 1,8 milljarður í aukagreiðslur úr séreignarsjóði en árið 2011 hækkaðuðu aukagreiðslurnar í 2,6 milljarða. Lífeyrisgreiðslur úr samtryggingarsjóði stóðu í stað milli ára en á árinu 2011 voru lífeyrisréttindi skert um 5% en á móti hækkuðu lífeyrisgreiðslur um 5,2% vegna verðbólgu.
1850 sjóðfélagar fengu lífeyri í desember
Almenni lífeyrissjóðurinn greiddi 378 milljónir í lífeyri í desember til 1900 sjóðfélaga.
Samtryggingarsjóður greiðir ellilífeyri til æviloka og áfallalífeyri (örorku-, maka- og barnalífeyri). Í desember greiddi samtryggingarsjóðurinn 74 milljónir í lífeyri til 705 lífeyrisþega. Greiðslurnar skiptust þannig að 485 fengu ellilífeyri, 84 fengu örorkulífeyri, 100 fengu makalífeyri og 36 fengu barnalífeyri.
Inneign í séreignarsjóði er laus til úttektar við 60 ára aldur og geta sjóðfelagar ráðið hvernig þeir taka út inneign sína. Flestir, sem eru orðnir 60 ára og byrjaðir að ganga á inneign sína, dreifa úttekt á nokkur ár og er algengast að inneign sé greidd út á 10 til 15 árum. Í desember fengu 185 sjóðfélagar 60 ára og eldri útborgaðar 66 milljónir úr séreignarsjóði. Inneign í séreignarsjóði er einnig laus fyrir yngri sjóðfélaga samkvæmt sérstakri heimild um tímabundna heimild séreignarsparnaðar. Í desember voru greiddar út 237 milljónir samkvæmt heimildinni til 909 sjóðfélaga.
Farsælt komandi ár
Almenni lífeyrissjóðurinn óskar sjóðfélögum gleðilegs árs og þakkar fyrir ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.

<<Til baka