Beint í leiðarkerfi

Frétt

26.01.2012

Taktu vel á móti sendiboðanum

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur sent sjóðfélögum yfirlit sem sýna hreyf­ingar á tímabilinu 1. september til 31. desember 2011 og upplýsingar um lífeyris­réttindi og inneign í lok tímabilsins. Með yfirlitunum fylgdi með bréf til sjóðfélaga sem hægt er að lesa hér.

Kaffi og kleinur fyrir sendiboðann
Í nýrri grein á fræðsluvef er fjallað um yfirlit sem lífeyrissjóðir senda sjóðfélögum með upplýsingum um inneign og lífeyrisréttindi. Í greininni er yfirlitunum líkt við sendiboða sem flytja mikilvægar upplýsingar. Seinna meir, og jafnvel fljótlega, geta lífeyrisréttindi skipt sköpum um afkomu og lífsgæði. Það er góður siður að taka vel á móti sendiboðum. Greinina má lesa hér.

Hækkun á öllum ávöxtunarleiðum á árinu 2011
Allar ávöxtunarleiðir séreignarsjóðs og samtryggingarsjóður hækkuðu á árinu 2011. Ríkissafn langt skilaði bestu ávöxtuninni en blönduð verðbréfasöfn skiluðu einnig ágætri ávöxtun. Um ávöxtun árið 2011 má lesa í frétt sem birtist 13.01.2012.


<<Til baka