Beint í leiðarkerfi

Frétt

03.02.2012

Skýrsla Úttektarnefndar lífeyrissjóða

Almenni lífeyrissjóðurinn fagnar útgáfu skýrslu Úttektarnefndar lífeyrissjóða sem birt var í dag. Í skýrslunni er að finna yfirlit og úttekt á starfsemi lífeyrissjóða árin 2006-2010 og áhrif efnahagshrunsins 2008 og 2009 á eignir sjóðanna.Skýrsla Úttektarnefndarinnar staðfestir í öllum aðalatriðum mat Almenna lífeyrissjóðsins á áhrifum efnahagshrunsins á eignir sjóðsins sem nú þegar hefur verið tekið tillit til í eignamati sjóðsins og kynnt fyrir sjóðfélögum.

Mikilvægt er að stjórnendur lífeyrissjóða dragi lærdóm af efnahagshruninu og geri ráðstafanir til að verja sjóðina og sjóðfélaga fyrir öðrum áföllum. Almenni lífeyrissjóðurinn mun yfirfara ábendingar úttektarnefndarinnar og taka tillit til þeirra í rekstri sjóðsins í framtíðinni.

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur þegar brugðist við efnahagshruninu með margvíslegum aðgerðum. Sjóðurinn hefur m.a. eflt eignastýringu sjóðsins og breytt fjárfestingarstefnu til að auka áhættudreifingu.

Hér fyrir neðan má nálgast greinagerð sjóðsins vegna umfjöllunar Úttektarnefndar lífeyrissjóða um Almenna lífeyrissjóðinn og yfirlit um aðgerðir sem sjóðurinn hefur gripið til.

Greinargerð.

Skýrsla úttektarnefndarinnar.
1. Bindi
2. Bindi
3. Bindi
4. Bindi


<<Til baka