Beint í leiðarkerfi

Frétt

03.05.2012

Vel heppnaður ársfundur

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins árið 2012 var haldinn á Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 26. apríl. Á fundinum var lögð fram skýrsla stjórnar og ársreikningur 2011. Fundurinn var ágætlega sóttur en alls mættu um 100 manns.

Afkoma Almenna lífeyrissjóðsins var góð á árinu 2011.

  • Allar ávöxtunarleiðir sjóðsins hækkuðu og allar nema ein skiluðu jákvæðri raunávöxtun. Sjá nánar frétt frá 13.1.2012. 
  • Tryggingafræðileg staða samtryggingarsjóðs batnaði á árinu og var heildarstaða sjóðsins -4,5% í árs­lok 2011. 
  • Tryggingafræðileg staða er innan þeirra marka sem lög kveða á um og því voru ekki gerðar neinar breytingar á réttindum. 
  • Árið 2012 hefur farið vel af stað og var góð ávöxtun á fyrstu mánuðum ársins. Sjá nánar frétt frá 10.4.2012.

 Á ársfundinum urðu breytingar á stjórn sjóðsins. 

  • Á fundinum voru Ástríður Jóhannesdóttir, læknir, og Hrönn Sveinsdóttir, viðskiptafræðingur, kosnar í stjórn til þriggja ára og Andrés Magnússon, læknir, til eins árs. 
  • Ólafur H. Jónsson, tæknifræðingur, var kosin varamaður til þriggja ára og Ingvar J. Baldursson, tæknifræðingur, til tveggja ára. 
  • Úr stjórn gengu Páll Ásgeir Pálsson, tæknifræðingur, Vilhelmína Haraldsdóttir, læknir og Eiríkur Þorbjörnsson, tæknifræðingur.

Í aðalstjórn er nú jafnt kynjahlutfall en í stjórninni sitja þrjár konur og þrír karlar. Stjórnin hefur komið saman eftir ársfundinn og kosið Sigurbjörn Sveinsson, lækni, formann og Sigríði Sigurðardóttur, arkitekt, sem varaformann.

Gögn frá ársfundinum
Ársskýrsla 2011 (pdf form / vefform)
Ræða Páls Ásgeirs Pálssonar, formanns stjórnar
Glærur frá fundinum
Skýrsla Vigfúsar Ásgeirssonar, tryggingafræðings, um tryggingafræðilega úttekt m.v. 31.12.2011
Fundargerð ársfundar


<<Til baka