22.05.2012
Samningur við Glitni
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur ásamt fjórtán öðrum lífeyrissjóðum samið við Glitni hf. um uppgjör skulda og krafna.
- Undir samkomulagið falla allar kröfur aðila, þar með taldar kröfur vegna gjaldmiðlavarnasamninga sem gerðir voru til að draga úr gengisáhættu í eignasöfnum lífeyrissjóðanna.
- Ágreiningskrafa um víkjandi skuldabréf útgefið af Glitni í mars 2008 er undanskilin. Lífeyrissjóðir vilja að Glitnir viðurkenni skuldabréfið sem almenna kröfu á grundvelli þess að bankinn hafi ekki veitt réttar upplýsingar við útgáfu bréfsins. Samkomulag er um að vísa ágreiningnum til dómstóla.
- Samkvæmt samningnum verður endanleg greiðsla Almenna lífeyrissjóðsins til Glitnis vegna gjaldeyrisvarnarsamninganna 1,9 milljarður en greiðslan verður óveruleg ef lífeyrissjóðir vinna málaferli vegna víkjandi skuldabréfs. Í uppgjöri sjóðsins er í varúðarskyni gert ráð fyrir fullri greiðslu til Glitnis.
Samningur lífeyrissjóða og Glitnis felur í sér að báðir aðilar falla frá ýtrustu kröfum og því lækkar bókfært tap Almenna lífeyrissjóðsins vegna gjaldeyrisvarnarsamninga um þriðjung. Áhrifin eru mest í blönduðum verðbréfasöfnum sem fjárfesta í erlendum verðbréfum. Samningurinn hefur jákvæð áhrif á eftirfarandi ávöxtunarleiðir.
| Ávöxtunarleið |
Hlutfall erlendra eigna í % |
Gengisbreyting 22.5. í % |
| Ævisafn I |
52,5 |
+6,8 |
| Ævisafn II |
31,1 |
+3,7 |
| Ævisafn III |
10,5 |
+1,0 |
| Samtryggingarsjóður |
19,9 |
+2,2 |
| Ævisafn IV |
|
+0,4 |
Með samkomulaginu hefur óvissu um eignamat í blönduðum verðbréfasöfnum verið eytt að mestu. Eignir þeirra eru vel dreifðar á lönd, atvinnugreinar og eignaflokka og því eru söfnin góður kostur fyrir langtímasparnað.
<<Til baka