02.07.2012
Ávöxtunarleið að eigin vali
Þann 1. júlí 2012 féll úr gildi ákvörðun stjórnar um að greiða öll séreignariðgjöld í Innlánasafn.
Á tímabilinu 2. október 2008 til 30. júní 2012 voru iðgjöld í séreignarsjóð greidd í Innlánasafn nema sjóðfélagar óskuðu eftir annarri ráðstöfun. Þessi ráðstöfun var gerð vegna óvissu um eignamat eftir efnahagshrunið 2008 en var felld úr gildi þann 1. júlí 2012, sjá frétt frá 8. júní 2012. Breytingin var vel kynnt fyrir sjóðfélögum, m.a. með bréfi til allra virkra sjóðfélaga í Innlánasafni og á sjóðfélagafundi sem var haldinn 19. júní sl.
Í séreignarsjóði geta sjóðfélagar valið á milli sex ávöxtunarleiða fyrir viðbótarlífeyrissparnað hjá Almenna lífeyrissjóðnum. Sjóðfélagar geta hvenær sem valið þá leið sem hentar best ef þeir skipta um skoðun. Þeir sjóðfélagar sem t.d. vilja halda áfram að greiða í Innlánasafnið geta hvenær sem er beðið um breytingu á ráðstöfun iðgjalda. Á heimsíðu sjóðsins eru ítarlegar upplýsingar um ávöxtunarleiðirnar auk þess sem ráðgjafar sjóðsins eru tilbúnir að veita nánari upplýsingar og taka á móti sjóðfélögum sem vilja ræða málin.
<<Til baka