Beint í leiðarkerfi

Lög og reglur

Almenni lífeyrissjóðurinn er fullgildur lífeyrissjóður og hefur starfsleyfi samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. 

Fjármálaráðuneytið

Fjármálaráðuneytið sér um framkvæmd og eftirlit laga um lífeyrissjóði og ráðherra setur reglugerðir á grundvelli laganna.

Fjármálaeftirlitið

Fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með að starfsemi lífeyrissjóða sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og reglna settar samkvæmt þeim og staðfestar samþykktir lífeyrissjóða.

Landssamtök Lífeyrissjóða

Hlutverk samtakanna er m.a. að gæta í hvívetna hagsmuna sjóðfélaga, vera málsvari gagnvart stjórnvöldum og öðrum í öllu sem varðað getur sameiginlega hagsmuni aðildarsjóðanna. Samtökin hafa líka frumkvæði að þjóðmálaumræðu um lífeyrismál, vinna að útgáfu- og fræðslumálum ásamt mörgu fleiru.