Vinsamlegast athugið
Lykillinn er lokaður tímabundið á meðan unnið er að endurbótum á tölvukerfi sjóðsins. Vonumst til að geta opnað aftur um mánaðarmótin. Sjóðfélagar geta haft samband við ráðgjafa til að fá nánari upplýsingar.
- Lykillinn er bylting í þjónustu við sjóðfélaga.
- Í Lyklinum er að finna mjög góða framsetningu á upplýsingum sem hjálpar sjóðfélögum að skilgreina markmið sín og átta sig á stöðunni.
- Hægt er að setja sér markmið og vinna út frá þeim.
- Framsetningin er myndræn þar sem viðkomandi sér stöðumat og getur fengið ráðgjöf og gert viðeigandi ráðstafanir sé hann ekki í góðum málum.
- Hægt er að horfa á kynningarmyndband sem lýsir á myndrænan hátt hvernig Lykillinn virkar.
ATH: til að horfa á myndbandið þarf Flash spilara útgáfu 8 eða hærri.
Lykillinn af Almenna lífeyrissjóðnum
Lykillinn er reiknivél fyrir lífeyrisréttindi þar sem þú getur á myndrænan og skýran hátt séð upplýsingar um núverandi stöðu og áætlað eftirlaun og áfallalífeyri í hlutfalli við laun en þannig er auðveldara að átta sig á stöðunni.
Í Lyklinum getur þú séð hvernig við metum stöðu þína:
· Ertu að spara nóg til að tryggja þér ásættanleg eftirlaun?
· Ertu nógu vel varin/n gegn tekjumissi vegna örorku og ertu viðbúin sveiflum í ávöxtun?
Við notum umferðarljós til að sýna mat okkar á stöðu þinni. Ef þú ert á rauðu eða gulu ljósi bendum við þér á leiðir til að bæta stöðuna og komast á grænt ljós.
Flest látum við af störfum á aldrinum 60 til 70 ára og eigum þá eftir að lifa í 20 til 30 ár. Það er langur tími og þá skiptir máli að hafa tryggt sér góð eftirlaun til að geta haldið óbreyttum lífsgæðum. Lykillinn kemur að góðum notum til þess að meta núverandi stöðu, átta sig á hvert stefnir og gera ráðstafanir til að komast í óskastöðuna.
Gangi þér vel að nota Lykilinn.