Markmið Almenna lífeyrissjóðsins er að tryggja sjóðfélögum sínum sem hæstan lífeyri við starfslok, veita sjóðfélögum tryggingavernd vegna tekjumissis í kjölfar örorku og stuðla að auknu fjárhagslegu öryggi aðstandenda við andlát.
Sjóðurinn tileinkar sér ábyrga starfshætti og stefnir að því að vera í fararbroddi með þjónustu og nýjungar í lífeyrismálum. Hér að neðan má sjá yfirlit 8 markmiða sem sjóðurinn hefur sett fram og hvernig stefnt skuli að því að ná þeim.
- Aldurstengd verðbréfasöfn. Fjögur söfn með mismunandi eignasamsetningu og áhættu sem talin eru henta fyrir ólíka aldurshópa:
- Ævisafn I, II, III, IV og Innlánssafn
- Ævileiðin (inneign flyst milli aldurstengdra verðbréfasafna eftir aldri)
- Aðrar ávöxtunarleiðir í samvinnu við Íslandsbanka:
- verðbréf
- innlánsreikningar
- Markvissar eignastýringaraðferðir:
- fjárfestingarstefna yfirfarin einu sinni á ári
- regluleg verðbréfakaup ásamt hægfara en markvissum eignabreytingum
- lágur kostnaður
- vísitölusjóðir eru undirstaðan við fjárfestingar í hlutabréfum enda segir sagan að þeir gefi bestan árangur til langs tíma.
- mikil áhættudreifing, m.a. með því að fjárfesta í sjóðum
- Reglulegur samanburður við vísitölur og aðra lífeyrissjóði (vinnuhópur stjórnar (ávöxtunarhópur), reglulegar upplýsingar á stjórnarfundum)
- Reglulegar mælingar á ávöxtun og áhættu
- Dagleg uppgjör og viðskiptavakt
- Markviss rekstur:
- Skilvirkt innra eftirlit og skýrsluskil til opinberra aðila
- skipulag til fyrirmyndar. Starfsmenn hafa starfslýsingar og verkferlar um helstu verkefni
- Góð upplýsingakerfi:
- Stefnt að 95% iðgjalda berist með rafrænum hætti
- Vinnuhópur stjórnar fylgist með að kostnaður haldist undir skilgreindum kostnaðarviðmiðunum
- Stækkun sjóðsins til að ná frekari stærðarhagkvæmni:
- Fjölgun sjóðfélaga
- Samstarf eða sameining við aðra sjóði
- Fjölga greiðendum í samtryggingarsjóð m.a. með markaðsaðgerðum til að tryggja betri áhættudreifingu
- Sjóðurinn er jákvæður gagnvart sameiningum við aðra lífeyrissjóði til þess að auka áhættudreifingu
- Vel fylgst með tryggingafræðilegri stöðu m.a. hvernig staðan breytist frá einum mánuði til annars
- Upplýsingar um tryggingavernd á yfirlitum til sjóðfélaga ásamt ábendingum
- Birta í reiknivél ábendingu til sjóðfélaga um ráðlagðar viðbótartryggingar
- Bjóða sjóðfélögum viðbótartryggingar
- Stuðla að endurhæfingu og starfsþjálfun svo örorkulífeyrisþegar geti farið aftur á vinnumarkað.
- Viljum kanna hagkvæmni þess að aðskilja fjárfestingaráhættu lífeyrisþega og annarra sjóðfélaga
- Sjóðfélagar geti greitt hluta lágmarksiðgjalds í séreignarsjóð
- Umframávöxtun í samtryggingarsjóði greiðist í séreignarsjóð
- Sveigjanleiki fyrir sjóðfélaga í fyrirkomulagi lífeyrisgreiðslna
- Sjóðfélagar geti sjálfir tekið út lífeyri úr séreignarsjóði á netinu í samræmi við reglur um útborgun séreignarsjóðs - ekki til staðar núna.
- Alltaf hægt að nálgast upplýsingar um hreyfingar, inneign og áunnin réttindi á netinu
- Yfirlit ásamt ábendingum og upplýsingum um afkomu sjóðsins send tvisvar á ári
- Tilkynning til sjóðfélaga ef iðgjaldagreiðslur falla niður til þess að forðast tap á iðgjöldum vegna gjaldþrota
- Bæta upplýsingum um tryggingavernd á yfirlitin
- Námskeið og fundir:
- árlegur ársfundur
- námskeið um lífeyrismál
- Kortleggja öll samskipti við sjóðfélaga og skilgreina samskiptaferli (hvað gerum við, hvernig/hvenær lýkur erindinu) og verkferla
- Vinnuhópur stjórnar (þjónustuhópur) yfirfer reglulega verkferla og kemur með ábendingar
- Áhersla á gott viðmót og stuttan svartíma
- Fagleg ráðgjöf til sjóðfélaga og launagreiðenda með bæklingum, viðtölum og námskeiðum
- Ítarlegar og góðum upplýsingum á vefnum
- Bjóða sjóðfélögum hagstæð lán sem taka mið af aðstæðum einstakra sjóðfélaga í samræmi við lánareglur sjóðsins
- Stuðningur við lífeyrisþega með fræðslu og tómstundastarfi
- Þjónustukannanir á tveggja til fjögurra ára fresti
- Fylgjast með og taka þátt í að móta lagaumhverfi fyrir lífeyrissjóði og lífeyrisþega