Beint í leiðarkerfi

Saga sjóðsins

Saga Almenna lífeyrissjóðsins nær yfir marga áratugi og eru rætur hans bæði langar og traustar. Í raun samanstendur sjóðurinn af átta lífeyrissjóðum sem hafa sameinast en á mismunandi tímum. Þeir lífeyrissjóðir sem hafa sameinast í Almenna lífeyrissjóðinn eru ALVÍB (Almennur lífeyrissjóður VÍB), Lífeyrissjóður arkitekta, Lífeyrissjóður starfsmanna SÍF, Lífeyrissjóður FÍH, Lífeyrissjóður Félags leiðsögumanna, Lífeyrissjóður lækna og Lífeyrissjóður Tæknifræðingafélags Íslands.

Almenni lífeyrissjóðurinn er opinn fyrir alla en sjóðurinn er jafnframt starfsgreinasjóður arkitekta, lækna, leiðsögumanna, hljómlistarmanna og tæknifræðinga.

Nokkur mikilvæg skref í þróun Almenna lífeyrissjóðsins:
1965:  Lífeyrissjóður Tæknifræðingafélags Íslands stofnaðir
1967:  Lífeyrissjóður arkitekta og Lífeyrissjóður lækna stofnaðir
1968:  Lífeyrissjóður starfsfólks SÍF, LSÍF stofnaður
1970:  Lífeyrissjóður FÍH stofnaður
1977:  Lífeyrissjóður Félags leiðsögumanna, LFL, stofnaður
1990:  ALVÍB, Almenni lífeyrissjóður VÍB, stofnaður
1995:  ALVÍB og Lífeyrissjóður Félags leiðsögumanna sameinast undir nafni ALVÍB
1996:  ALVÍB og Lífeyrissjóður FÍH sameinast undir nafni ALVÍB
1997:  ALVÍB og Lífeyrissjóður starfsmanna SÍF sameinast undir nafni ALVÍB
1998:  Lífeyrissjóður Tæknifræðingafélags Íslands og Lífeyrissjóður arkitekta sameinast og stofna Lífeyrissjóð arkitekta og tæknifræðinga, LAT
 ALVÍB býður sjóðfélögum að velja milli mismunandi verðbréfasafna og kynnir Ævileiðina. Ævisöfn I-III stofnuð
1999:  ALVÍB stofnar samtryggingarsjóð
2000:  Lífeyrissjóður lækna breytir yfir í aldurstengt réttindakerfi
2002:  ALVÍB stofnar Ævisafn IV
2003:  ALVÍB og LAT sameinast og stofna Almenna lífeyrissjóðinn
2006:  Lífeyrissjóður lækna og Almenni lífeyrissjóðurinn sameinast undir nafni Almenna lífeyrissjóðsins