3. kafli. Séreignarsjóður
10. grein. Séreignarsjóður
10.1 Sjóðfélögum er heimilt að greiða iðgjald í séreignarsjóð Almenna lífeyrissjóðsins til viðbótartryggingaverndar skv. lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
10.2 Þeir sem vilja greiða iðgjald í séreignarsjóð skulu gera skriflegan samning við sjóðinn í samræmi við ákvæði laga nr. 129/1997 og reglugerð með lögunum þar um.
10.3 Fé það, sem lagt er inn í séreignarsjóð í nafni sjóðfélaga, skal vera séreign hans. Auk þess skal færa til eignar hjá hverjum sjóðfélaga þær tekjur sem sjóðnum áskotnast vegna eignar hans í sjóðnum, s.s. vegna vaxta, verðbóta, arðs eða gengishagnaðar.
10.4 Stjórn er heimilt að fenginni skriflegri beiðni einstakra sjóðfélaga að draga af inngreiddum viðbótariðgjöldum þeirra upphæð sem svarar til iðgjalds vegna líf- eða heilsutryggingar hjá viðurkenndu líftryggingarfélagi. Útborgun bóta samkvæmt tryggingunum fari eftir 11. grein laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.
10.5 Nettótekjur séreignarsjóðs skiptast milli sjóðfélaga í hlutfalli við eign hvers um sig og færast á sérreikning þeirra.
11. grein. Verðbréfasöfn
11.1. Sjóðfélagar geta valið á milli þess að ávaxta inneign sína í sjö verðbréfasöfnum. Verðbréfasöfnin eru:
Ævisafn I er fyrir sjóðfélaga sem vilja taka nokkra áhættu og hentar vel fyrir sjóðfélaga á aldrinum 16-44 ára.
Ævisafn II er fyrir sjóðfélaga sem vilja taka meðaláhættu og hentar vel fyrir sjóðfélaga á aldrinum 45-59 ára.
Ævisafn III er fyrir sjóðfélaga sem vilja taka litla áhættu og hentar vel fyrir þá sem eru 60 ára og eldri.
Ævisafn IV er fyrir þá sem eru byrjaðir að taka lífeyri og ganga á inneign sína.
Innlánasafn er fyrir þá sem vilja forðast verðsveiflur á inneign sinni og hentar fyrir þá sem eru byrjaðir að taka lífeyri og ganga á inneign sína.
Ríkissafn – stutt er fyrir þá sem vilja lágmarksskuldaraáhættu og vilja forðast verðsveiflur á inneign sinni. Safnið hentar fyrir þá sem eru byrjaðir að taka lífeyri og ganga á inneign sína.
Ríkissafn – langt er fyrir þá sem sem vilja lágmarksskuldaraáhættu, þola nokkrar sveiflur í ávöxtun og hyggjast ekki ganga á inneign sína á næstu 12 mánuðum.
11.2 Sjóðfélagar geta valið að ávaxta inneign sína í einstökum verðbréfasöfnum eða valið Ævileiðina en þá flyst inneign þeirra milli verðbréfasafna eftir aldri. Þeir sem velja þennan kost flytjast sjálfkrafa án kostnaðar úr Ævisafni I í Ævisafn II í jöfnum áföngum á þremur árum á aldrinum 45 til 48 ára og síðan úr Ævisafni II í Ævisafn III í jöfnum áföngum á þremur árum á aldrinum 57 til 60 ára. Iðgjöld sem berast eftir að flutningur milli ævisafna er hafinn greiðast í það ævisafn sem inneign flyst í. Þeir sem ekki velja sér verðbréfasafn ávaxta inneign sína samkvæmt Ævileiðinni.
11.3 Sjóðfélagar geta hvenær sem er valið nýtt safn til að ávaxta inneign sína og flutt inneign milli verðbréfasafna í einu lagi eða í áföngum. Beiðnir um breytingar á ávöxtunarleið skulu vera staðfestar af sjóðfélögum með undirskrift. Ef um er að ræða flutning í einu lagi skal inneign flutt milli verðbréfasafna í lok mánaðar eftir að beiðni berst. Beiðnir um flutning sem berast síðustu tvo virka daga mánaðar verða afgreiddar í lok næsta mánaðar eftir að beiðni berst. Sjóðfélagar greiða 0,2% af eignum í kostnað fyrir flutning á inneign milli ávöxtunarleiða nema ef inneign er flutt úr Innlánssafninu, þá er kostnaðurinn 0,1%. Enginn kostnaður er greiddur þegar inneign flyst milli safna samkvæmt Ævileiðinni.
11.4 Jafnframt er stjórn heimilt að gera samning við einstaka sjóðfélaga um að ávaxta inneign þeirra í sérstökum verðbréfasöfnum Almenna lífeyrissjóðsins.
11.5 Ákvæði 9. greinar um fjárfestingarheimildir gilda fyrir hvert og eitt verðbréfasafn.
12. grein. Útborgun inneignar
12.1 Inneignir sjóðfélaga greiðast þannig:
Þegar sjóðfélagi er orðinn 60 ára og a.m.k. tvö ár eru liðin frá fyrstu innborgun í séreignarsjóðinn er heimilt að hefja útborgun lífeyrissparnaðar og vaxta . Sjóðfélagi getur tekið út inneign sína með eingreiðslu eða valið að dreifa útborgunum á lengra tímabil.
12.2 Þetta fyrirkomulag gildir þó ekki um skilyrta inneign í séreignarsjóði sem er hluti af lágmarkstryggingavernd samkvæmt séreignarleiðinni samkvæmt samþykktum Almenna lífeyrissjóðsins sem giltu fyrir 1. janúar 2006. Skilyrt inneign kemur til útborgunar 70 til 79 ára. Sjóðfélögum er þó heimilt að flýta töku skilyrtrar inneignar og lengja útborgunartímann þannig að inneignin greiðist frá 65 ára aldri til 79 ára aldurs.
12.3 Verði sjóðfélagi öryrki og orkutapið sem hann verður fyrir er 100% á hann rétt á að fá lífeyrissparnað og vexti greidda út með jöfnum árlegum greiðslum á sjö árum. Nú er örorkuprósentan lægri en 100% og lækkar þá árleg útborgun í hlutfalli við lækkun örorkuprósentunnar og úttektartíminn lengist samsvarandi.
12.4 Við andlát sjóðfélaga, fellur inneign hans í séreignarsjóði til erfingja hans og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga. Láti sjóðfélagi ekki eftir sig börn eða maka, skal innstæðan renna til dánarbús rétthafa án takmarkana 2. ml. 2. mgr. 8. gr. laga 129/1997.Maki samkvæmt þessari grein telst sá sem var í hjúskap með sjóðfélaga við andlát, sbr. reglur erfðalaga 8/1962.12.5 Heimilt er stjórn sjóðsins að víkja frá fyrrgreindum ákvæðum um útborgun inneignar ef inneign í séreignarsjóði er undir kr. 688.761, en sú fjárhæð breytist árlega í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs miðað við grunnvísitölu 239,0 stig í janúar 2005. Í þeim tilvikum skal greiða sjóðfélaga inneignina á skemmri tíma en fram kemur í greinum 12.2 og 12.3. eða með eingreiðslu ef sjóðfélagi óskar þess.
12.5 Heimilt er stjórn sjóðsins að víkja frá fyrrgreindum ákvæðum um útborgun inneignar ef inneign í séreignarsjóði er undir kr. 688.761, en sú fjárhæð breytist árlega í hlutfalli við breytingu á vísitölu neysluverðs miðað við grunnvísitölu 239,0 stig í janúar 2005. Í þeim tilvikum skal greiða sjóðfélaga inneignina á skemmri tíma en fram kemur í greinum 12.2. og 12.3. eða með eingreiðslu ef sjóðfélagi óskar þess.
12.6 Umsókn um útborgun inneignar úr séreignarsjóði skal vera skrifleg. Lífeyrisgreiðslur úr séreignarsjóði eru að jafnaði greiddar einu sinni í mánuði, fyrsta virka dag hvers mánaðar. Ef óskað er eftir eingreiðslu milli mánaðarlegra greiðslna skal útborgunin framkvæmd 15. dag mánaðar (eða fyrsta virka dag þar eftir ef 15. dagur er frídagur) ef beiðnin berst í fyrri hluta mánaðar en annars í byrjun næsta mánaðar með mánaðarlegum greiðslum.
12.7 Samningi er hægt að segja upp með tveggja mánaða fyrirvara. Samningur fellur úr gildi ef sjóðfélagi hættir störfum, sem er forsenda fyrir greiðslu hans til séreignarsjóðs Almenna lífeyrissjóðsins, nema hann óski þess að halda áfram að greiða til séreignarsjóðsins. Uppsögn samnings um séreignarsparnað eða viðbótartryggingavernd veitir ekki rétt til útborgunar innstæðu eða réttinda.
13. grein. Skipting inneignar milli sjóðfélaga og maka
13.1 Á grundvelli samkomulags sjóðfélaga og maka hans getur sjóðfélagi ákveðið skipan mála skv. a–b þessarar málsgreinar. Samkomulag þetta skal eftir því sem við á ná til inneignar í séreignarsjóði og fela í sér gagnkvæma og jafna skiptingu inneignar meðan hjúskapur eða sambúð hefur staðið eða stendur:
a) Sjóðfélagi getur ákveðið að inneign hans skuli allt að hálfu renna til að mynda sjálfstæða inneign fyrir maka hans eða fyrrverandi maka og lækkar þá inneign sjóðfélagans sem því nemur.
b) Að iðgjald vegna sjóðfélaga í séreignarsjóði skuli allt að hálfu renna til að mynda séreignarreikning fyrir maka hans.
14. grein. Flutningur inneignar
14.1 Nú gerist sjóðfélagi, sem fer úr þessum sjóði, sjóðfélagi í öðrum lífeyrissjóði, sem starfsleyfi hefur eða gerir samning við annan vörsluaðila lífeyrissparnaðar og skal stjórn sjóðsins þá greiða alla inneign sjóðfélagans til annars vörsluaðila óski sjóðfélagi eftir því.
14.2 Endurgreiðslufjárhæðin er inneign sjóðfélaga að frádregnum kostnaði sem nemur allt að einu prósenti af inneign viðkomandi sjóðfélaga en þó aldrei minna en 5.000 kr.
14.3 Beiðni um flutning á inneign til annars vörsluaðila skal vera staðfest af sjóðfélaga með undirskrift. Inneign skal flutt með eingreiðslu innan 60 daga eftir að beiðni berst en þó aldrei fyrr en eftir tvo virka daga.
15. grein. Um framsöl og veðsetningu inneignar
15.1 Óheimilt er að framselja eða veðsetja inneignir í sjóðnum, hvort heldur er sem heild eða hluta þeirra, svo sem einstakar útborganir.