Beint í leiðarkerfi

Ýmis ákvæði

 

5. kafli. Ýmis ákvæði

26. grein. Upplýsingaskylda

26.1 Stjórn er skylt að upplýsa sjóðfélaga um iðgjaldagreiðslur, inneign þeirra í séreignarsjóði, áunnin réttindi þeirra í samtryggingarsjóði og inneign og réttindi miðað við áfram­haldandi greiðslur með því að senda yfirlit a.m.k. tvisvar á ári. Með yfirlitum um iðgjaldagreiðslur skal fylgja áskorun til sjóðfélaga um að gera án tafar athugasemdir ef sannanlega innheimt iðgjöld hafa ekki borist sjóðnum Jafnframt skulu fylgja með yfirlitum upplýsingar um breytingar á sam­þykktum, rekstur, fjárhagsstöðu og eignir Almenna lífeyrissjóðsins. Ef lífeyrissjóðurinn getur tryggt sjóðfélögum aðgang að ofangreindum upplýsingum á læstu vefsvæði í gegnum notendanafn og lykilorð má sjóðfélagi afþakka heimsend yfirlit.27. grein. Flutningur réttinda til annarra lífeyrissjóða

27.1 Heimilt er stjórn að flytja réttindi einstakra sjóðfélaga sem þess óska úr samtryggingarsjóði yfir til annars löglegs lífeyrissjóðs þegar að töku lífeyris kemur. Enn­fremur er heimilt að endur­greiða iðgjöld til erlendra ríkisborgara þegar þeir flytjast úr landi enda sé slíkt ekki óheimilt samkvæmt milliríkjasamningi sem Ísland er aðili að. Flutt rétt­indi skulu miðast við niðurstöðu síðasta tryggingaruppgjör sjóðins þannig að flutningur réttinda sé gerður á tryggingafræðilega réttum forsendum.

28. grein. Gerðardómur

28.1 Vilji sjóðfélagi ekki una úrskurði sjóðstjórnar í máli er hann hefur skotið til hennar getur hann vísað því til gerðardóms sem skipaður skal þremur mönnum, einum tilnefnd­um af við­kom­andi sjóð­félaga, einum tilnefndum af Almenna lífeyrissjóðnum og odda­manni til­nefndum af Fjármála­eftirlitinu. Úrskurður gerðardóms er bindandi fyrir báða aðila. Málskostnaði skal skipt milli málsaðila eftir mati dómsins, en þó skal sjóð­félagi ekki greiða meira en sem nemur einum þriðja hluta máls­kostnaðar. Um málsmeðferð fyrir gerðar­dómn­um fer samkvæmt lögum um samn­­ings­­bundna gerðar­dóma.

29. grein. Daglegur rekstur

29.1 Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur sjóðsins og fer í því efni eftir ákvæðum laga og samþykkta sjóðsins og þeirri stefnu og fyrirmælum, sem stjórn sjóðsins hefur gefið. Fram­kvæmdastjóri ræður starfsmenn til sjóðsins.

29.2 Ákvarðanir sem eru óvenjulegar eða mikilsháttar skal framkvæmdastjóri aðeins taka á grundvelli sérstakrar ákvörðunar stjórnar eða samkvæmt áætlun sem samþykkt hefur verið af stjórninni. Sé ekki unnt að bera meiriháttar ákvarðanir undir stjórnarfund skal haft samráð við formann og varaformann stjórnar og aðra stjórnarmenn eftir föngum. Slíkar ákvarðanir skal síðan taka fyrir á næsta stjórnarfundi.

29.3 Allar meiriháttar breytingar á skipulagi sjóðsins, innra eftirliti, bókhaldi og reikningsskilum, skal framkvæmdastjóri aðeins gera að höfðu samráði við stjórn, og að fengnu samþykki hennar.

29.4 Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á að bókhald sjóðsins sé fært í samræmi við lög og viðurkenndar venjur. Honum ber einnig að fylgja þeirri fjárfestingarstefnu og þeim útlánareglum sem stjórnin setur. Á reglubundnum stjórnarfundum skal framkvæmdastjóri leggja fram yfirlit um fjárfest­ingar, rekstur og efnahag sjóðsins. Framkvæmdastjóri skal veita stjórn og endurskoðendum allar þær upplýsingar um hag og starfsemi sjóðsins sem þeir óska.

Bráðabirgðaákvæði við breytingu á samþykktum 26. apríl 2007

Í framhaldi af tryggingafræðilegri athugun á fjárhag lífeyrisdeildar miðað við 31.12.2006 og með vísan í grein 17.1 í samþykktum sjóðsins skulu réttindi í lífeyrisdeild hækkuð hlut­fallslega um 4,0% miðað við áunnin réttindi 31.12.2006. Áunnin og flutt lífeyrisréttindi í tryggingadeild skulu hækka um sama hlutfall.

Bráðabirgðaákvæði við breytingu á samþykktum 29. janúar 2009

Lífeyrisdeild er heimilt að hafa 15% mun á milli eigna og áætlaðra skuldbindinga vegna tryggingafræðilegrar athugunar í árslok 2008 án þess að breyta réttindum.

Bráðabirgðaákvæði við breytingu á samþykktum 10. mars 2009

Í framhaldi af tryggingafræðilegri athugun á fjárhag lífeyrisdeildar miðað við 31.12.2008 og með vísan í grein 17.1 í samþykktum sjóðsins skulu réttindi í lífeyrisdeild lækkuð hlut­fallslega um 10% frá og með 1. apríl 2008.

Bráðabirgðaákvæði við breytingu á samþykktum 29. október 2009

Deildir samtryggingarsjóðs Almenna lífeyrissjóðsins (eftirlaunadeild, tryggingadeild og lífeyrisdeild) sameinast 31. desember 2009 í eina deild sem greiðir lífeyri samkvæmt 4. kafla samþykkta sjóðsins. Réttindi sjóðfélaga í sameinuðum samtryggingarsjóði verða eftirfarandi:

1. Ellilífeyrisréttindi sjóðfélaga í samtryggingarsjóði vegna iðgjalda á tímabilinu 1.1.2006 til 31.12.2009 verða endurreiknuð samkvæmt réttindatöflu örorku vegna elli- og örorkuréttinda á hverjum tíma.

2. Eftirlaunasjóðir 1. janúar 2006 í eftirlaunadeild breytast í ævilöng ellilífeyrisréttindi frá 70 ára aldri

3. Endurreiknuð og áunnin ellilífeyrisréttindi 31.12.2009 lækka um 10%.

4. Áunnin tryggingaréttindi 1. janúar 2006 eru flutt örorku-, maka- og fjölskyldulífeyrisréttindi (þar með talin sérstök líftrygging lækna) ásamt eftirlaunasjóðum í eftirlaunadeild sem eru skráðir á nafn sjóðfélaga. Áunnu tryggingaréttindin lækka um 10% en breytast að öðru leyti ekki. Barnalífeyrisréttindi breytast ekki.

5. Réttindi ellilífeyrisþega sem hafa hafið töku ellilifeyris á tímabilinu frá 1. janúar 2006 til 31.12.2009 verða endurreiknuð samkvæmt liðum 1 og 2 og leiðrétt ef endurreiknuð réttindi reynast hærri heldur en áður úrskurðaður lífeyrir.

6. Lífeyrisréttindum í árslok 2009 verður síðan breytt hlutfallslega jafnt á ársfundi á árinu 2010 þannig að staða samtryggingarsjóðs verði í jafnvægi í árslok 2009 samkvæmt niðurstöðu tryggingafræðilegrar athugunar miðað við 31. desember 2009.

Breytingar á samþykktum þessum voru samþykktar á sjóðfélagafundi 29. október 2009 og taka gildi um leið og fjármálaráðuneytið hefur staðfest samþykktirnar.Breytingar á ákvæðum 16.4, 17.1 til 17.10, 18.1 til 18.4, 19.1, 19.3, 19.12, 20.1, 21.3, 24.1, 25.4, 25.5 og bráðabirgðaákvæði 29. október 2009 taka gildi 31. desember 2009 en þangað til gilda ákvæðin eins og þau eru í samþykktum sjóðsins sem voru samþykktar á ársfundi sjóðsins 10. mars 2009.

Tillaga 3

Bráðabirgðaákvæði við breytingu á samþykktum 29. apríl 2010

Í framhaldi af tryggingafræðilegri athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs miðað við 31.12.2009 og með vísan í grein 24.1 í samþykktum sjóðsins skulu lífeyrisréttindi lækkuð hlut­fallslega um 16,7% frá og með 1. júní 2010.

Breytingatillaga frá stjórn Almenna lífeyrissjóðsins við tillögu 3.

Bráðabirgðaákvæði við breytingu á samþykktum 29. apríl 2010

Í framhaldi af tryggingafræðilegri athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs miðað við 31.12.2009 og með vísan í grein 24.1 í samþykktum sjóðsins skulu lífeyrisréttindi lækkuð hlut­fallslega um 12%16,7% frá og með 1. júní 2010.

Bráðabirgðaákvæði við breytingu á samþykktum 28. apríl 2011

Í framhaldi af tryggingafræðilegri athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs og með vísan í grein 24.1 í samþykktum sjóðsins skulu lífeyrisréttindi sjóðfélaga miðað við 31.12.2010 lækkuð hlut­fallslega um 2,5% frá og fyrsta degi næsta mánaðar eftir að fjármálaráðuneyti staðfestir samþykktir sjóðsins.

Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins skal í október láta framkvæma tryggingafræðilega athugun miðað við 30.09.2011. Sýni athugunin að áunnin skuldbinding sé meira en 7,5% hærri en eignir skulu lífeyrisréttindi sjóðfélaga miðað við 31.12.2010 lækkuð hlut­fallslega um 2,5% frá og með 1. nóvember 2011.