Beint í leiðarkerfi

Af hverju Almenni?

Við vinnum aðeins fyrir sjóðfélaga

  • Sjóðurinn er með eigin rekstur í Borgartúni 25
  • Enginn milliliður sem þarf arð fyrir rekstur sjóðsins
  • Sjóðurinn stefnir að lágmarkskostnaði þannig að ávöxtun skili sér sem mest til sjóðfélaga

Eingöngu sjóðfélagar í stjórn

  • Sjóðfélagar kjósa stjórnarmenn
  • Eingöngu sjóðfélagar sitja í stjórn

Góð lífeyrisréttindi

  • Lágmarksiðgjald greiðist í séreign og sameign
  • Sveigjanleg eftirlaun
  • Hægt að hefja töku ellilífeyris úr samtryggingarsjóði 60 til 70 ára
  • Séreignarsjóður er laus frá 60 ára aldri
  • Séreignarsjóður erfist við fráfall
  • Örorkutíðni sjóðfélaga er lág þannig að sjóðurinn getur varið hærri hluta iðgjalds til að greiða eftirlaun
  • Örorkulífeyrir er með því besta sem gerist meðal lífeyrissjóða
  • Betri barnalífeyrir. Sjóðurinn greiðir tvöfalt hærri barnalífeyri en lágmark samkvæmt lögum (fjórfalt hærri barnalífeyri ef sjóðfélagi á ekki maka)

Fjölbreyttar ávöxtunarleiðir

  • Sjö ávöxtunarleiðir fyrir séreignarsjóð
  • Fjögur blönduð verðbréfasöfn
  • Innlánasafn
  • Tvö ríkisskuldabréfasöfn
  • Kostnaður ávöxtunarleiða er lágur þar sem enginn milliliður þarf arf
  • Sjóður reiknar og birtir daglegt gengi á vefsíðu sjóðsins
  • Sjóðfélagar geta breytt ávöxtunarleið á sjóðfélagavef hvenær sem þeir vilja

Lán til sjóðfélaga

  • Hagkvæm lán til sjóðfélaga
  • Ekkert uppgreiðslugjald

Góð þjónusta og upplýsingar

  • Sérhæfðir lífeyrisráðgjafar alltaf á vakt
  • Daglegar upplýsingar um inneign og réttindi á sjóðfélagavef
  • Eini sjóðurinn sem birtir upplýsingar um áfallalífeyri
  • Aðgangur að reiknivél með ráðgjöf og stöðumati á sjóðfélagavef
  • Opnir rabbfundir fyrir sjóðfélaga
  • Reglulegar fréttir og upplýsingar um lífeyrismál á vefsíðu sjóðsins