Endurskoðunarnefnd
Þann 1. janúar 2009 tók gildi ákvæði í lögum um ársreikninga þar sem kveðið er á við einingar tengdum almannahagsmunum, þ.a.m. lífeyrissjóðum, skuli starfa endurskoðunarnefnd. Hlutverk nefndarinnar er eftirfarandi:
1. Eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila.
2. Eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits einingarinnar, innri endurskoðun, ef við á, og áhættustýringu.
3. Eftirlit með endurskoðun ársreiknings og samstæðureiknings einingarinnar.
4. Mat á óhæði endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis og eftirlit með öðrum störfum endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis.
5. Setja fram tillögu til stjórnar um val á endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins skipaði eftirfarandi aðila í endurskoðunarnefnd sjóðsins þann 22. apríl 2009:
Gísli Hlíðberg Guðmundsson, formaður nefndarinnar. Gísli er löggiltur endurkoðandi og starfar hjá fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Netfang: gisli.hlidberg.gudmundsson@reykjavik.is
Ólafur Jónsson, verkefnastjóri hjá Skeljungi. Netfang: oj@skeljungur.is
Eiríkur Þorbjörnsson, deildarstjóri hjá Verkís. Eiríkur sat um árabil í aðalstjórn sjóðsins en er nú í varastjórn. Netfang: ekt@verkis.is