Lágmarksiðgjald
Lágmarksiðgjald er það iðgjald í lífeyrissjóð sem allir verða að greiða samkvæmt lögum. Almenni lífyerissjóðurinn er öllum opinn og geta þeir, sem ekki eru skyldugir að greiða í annan lífeyrissjóð, valið að greiða lágmarksiðgjald í Almenna lífeyrissjóðinn.
Séreign og sameign
Lágmarksiðgjald í Almenna lífeyrissjóðinn er 12% af launum og skiptist þannig að 4% greiðast í séreignarsjóð og 8% í samtryggingarsjóð. Nánar.
· Séreignarsjóður er laus til útborgunar við 60 ára aldur. Inneign í séreignarsjóði erfist við fráfall.
· Iðgjald í samtryggingarsjóð myndar réttindi til ævilangs ellilífeyris og áfallalífeyris (örorku- maka- og barnalífeyris).
Sveigjanleg eftirlaun
Tilgangurinn með því að skipta lágmarksiðgjaldi milli séreignar og sameignar er að auka sveigjanleika við töku lífeyris. Séreignarsjóður er laus til útborgunar við 60 ára aldur og hægt er hefja töku ellilífeyris úr samtryggingarsjóði á aldrinum 60 til 70 ára aldurs. Nánar.
Fjölbreyttar ávöxtunarleiðir í séreignarsjóði
Sjóðfélagar geta valið á milli sjö ávöxtunarleiða í séreignarsjóði. Nánar.
Áfallalífeyrir við örorku eða fráfall
Þar sem örörkutíðni sjóðfélaga er lág getur Almenni lífeyrissjóðurinn varið hærri hluta iðgjalds til að greiða eftirlaun. Sjóðfélagar njóta þess í formi hærri ellilífeyris. Nánar.
Áfallalífeyrir við örorku eða fráfall
Örorkulífeyrir er greiddur ef sjóðfélagi missir starfsgetu og orkutap er metið 50% eða meira. Örorkuréttindi í Almenna lífeyrissjóðnum eru með því besta sem gerist meðal lífeyrissjóða. Nánar.
Makalífeyrir er greiddur úr samtryggingarsjóði við fráfall sjóðfélaga. Makalífeyrir er alltaf greiddur í 2,5 ár og lengur ef yngsta barn sjóðfélaga er yngra en 20 ára. Nánar.
Betri barnalífeyrir. Sjóðurinn greiðir tvöfalt hærri barnalífeyri en lágmark samkvæmt lögum (fjórfalt hærri barnalífeyri ef sjóðfélagi á ekki maka). Nánar.