Viðbótarlífeyrissparnaður er sparnaðartækifæri sem enginn ætti að missa af. Vegna mótframlags launagreiðanda er viðbótarlífeyrissparnaður hagstæðasti sparnaður sem völ er á. Á löngum tíma getur munað milljónum ef borið er saman við almennan sparnað.
Helstu kostir:
· Mótframlag launagreiðanda allt að 2% af launum bætist við þitt framlag.
· Þægilegt - launagreiðandi sér um að greiða iðgjöldin.
· Enginn fjármagnstekjuskattur.
· Sparnaðurinn er séreign rétthafa sem erfist við fráfall.
· Hægt er að fylgjast daglega með inneigninni á sjóðfélagavef.
· Inneign er laus við 60 ára aldur.
Lesa meira um viðbótarlífeyrissparnað
Fjölbreyttar ávöxtunarleiðir
Í séreignarsjóði geta sjóðfélagar valið á milli sjö ávöxtunarleiða fyrir viðbótarlífeyrissparnað hjá Almenna lífeyrissjóðnum. Sjóðfélagar geta valið fleiri en eina ávöxtunarleið og geta einnig breytt um leiðir síðar ef þeir skipta um skoðun.
Kosturinn við að greiða viðbótarsparnað í Almenna lífeyrissjóðinn er lágur kostnaður en sjóðurinn býður sjóðfélögum að fjárfesta með sjóðnum á sömu kjörum og lífeyrissjóðurinn.
Helstu kostir:
· Sjö ávöxtunarleiðir fyrir séreignarsjóð.
· Fjögur blönduð verðbréfasöfn.
· Innlánasafn.
· Tvö ríkisskuldabréfasöfn.
· Kostnaður ávöxtunarleiða er lágur og sama hlutfall og rekstrarkostnaður sjóðsins.
· Sjóður reiknar og birtir daglegt gengi á vefsíðu sjóðsins.
· Sjóðfélagar geta breytt ávöxtunarleið á sjóðfélagavef hvenær sem þeir vilja.
Lesa meira um ávöxtunarleiðir