Beint í leiðarkerfi

Fjölbreyttar ávöxtunarleiðir

Sjóðfélagar geta valið á milli mismunandi ávöxtunarleiða fyrir viðbótarlífeyrissparnað.

Sjóðfélagar geta valið fleiri en eina ávöxtunarleið og geta einnig breytt um leiðir síðar ef þeir skipta um skoðun.

Kosturinn við að greiða viðbótarsparnað í Almenna lífeyrissjóðinn er m.a. lágur kostnaður en sjóðurinn býður sjóðfélögum að fjárfesta með sjóðnum á sömu kjörum og lífeyrissjóðurinn.

Hér fyrir neðan er yfirlit um ávöxtunarleiðirnar (Ævisafni IV er sleppt en samkvæmt fjárfestingar­stefnu er stefnt að því að sameina það Innlánasafni):

Ávöxtunarleið

Fjárfestingarstefna

Fyrir hverja


Ævisafn I


Fyrir þá sem eru að ávaxta lífeyrissparnað til langs tíma og þola sveiflur í ávöxtun


Ævisafn II


Fyrir þá sem eru að ávaxta lífeyrissparnað til langs tíma og þola sveiflur í ávöxtun


Ævisafn III


Fyrir þá sem vilja vera í blönduðu verðbréfasafni og litlar sveiflur á ávöxtun


Innlánasafn


Fyrir þá sem vilja litlar verðsveiflur


Ríkissafn – langt


Fyrir þá sem vilja bara ríkisskuldabréf og þola miklar   sveiflur í ávöxtun


Ríkissafn – stutt


Fyrir þá sem vilja bara ríkisskuldabréf og þola litlar sveiflur í ávöxtun


 

Ráðgjöf

Ráðgjöf Almenna lífeyrissjóðsins er að blönduð og vel dreifð verðbréfasöfn séu góður kostur fyrir lífeyrissparnað og skili góðri áhættudreifingu og bestu ávöxtuninni til lengri tíma litið. Við mælum með Ævileiðinni en þá flyst inneign milli Ævisafna I, II og III eftir aldri sjóðfélaga.

Ríkissöfnin og Innlánasafnið eru mikilvæg viðbót sem valkostir fyrir sjóðfélaga. Mikil eftirspurn er eftir innlánum og öruggum skulda­bréfum og hefur sjóðurinn brugðist við með því að bjóða sjóðfélögum að fjárfesta í innlánum og ríkis­skuldabréfum með sjóðnum.

Fyrirvarar

Eignir ávöxtunarleiða geta verið aðrar en langtíma fjárfestingarstefna vegna markaðs­að­stæðna. Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér upplýsingar um núverandi eignasamsetningu á upplýsingasíðum hverrar ávöxtunarleiðar.

Fjárfestingu í verðbréfum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Verðbréf geta hækkað eða lækkað í verði vegna markaðsaðstæðna, efnahagsástands og greiðslufalls útgefanda.

Blönduð verðbréfasöfn fjárfesta í erlendum verðbréfum. Verðmæti erlendra verðbréfa í íslenskum krónum breytist daglega vegna breytinga á gengi gjaldmiðla.

Ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð.

Sparnaðarmarkmið, fjárhagsstaða sjóðfélaga og viðhorf til áhættu eru mismunandi. Sjóðfélögum er bent á að hafa samband við ráðgjafa sjóðsins og kynna sér vel ávöxtunarleiðir sjóðsins.

Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér fjárfestingarstefnu sjóðsins sem lesa má hér.


Markaðsáhætta


Er áhættan á miklum sveiflum í ávöxtun vegna breytinga á verðmæti eigna. Eignir geta hækkað og lækkað í verði vegna markaðsastæðna, efnhagsástands og flökti á gengi gjaldmiðla. Safn með litla markaðsáhættu sveiflast lítið en safn með mikla áhættu sveiflast mikið.

Skuldaraáhætta

Skuldaraáhætta er sú áhætta að fjárfesting tapist vegna gjaldþrots útgefanda verðbréfs eða þess sem á að inna af hendi greiðslu. Skuldaraáhætta er mismikil meðal útgefenda. Skuldaraáhætta er talin lítil ef skuldabréf er með ríkisábyrgð. Skuldaraáhætta er meiri ef um skuldabréf fyrirtækja er að ræða. Skuldaraáhætta minnkar með auknum fjölda útgefenda í söfnum.