Frábær bók um lífeyrismál og eftirlaunasparnað
Íslandsbanki hefur gefið út bókina Verðmætasta eignin sem fjallar um lífeyrismál og eftirlaunasparnað, málefni sem varðar okkur öll. Í bókinni er m.a. fjallað um
- hvaða réttindi eru fólgin í lífeyrissjóðum.
- hvernig fólk geti fundið út hver staða þess er.
- hvaða leiðir er best að fara til að byggja upp eignir og eftirlaunasparnað.
- hvaða persónutryggingar á að velja til að tryggja fjárhagslegt öryggi.
- hvernig er best að skipuleggja töku lífeyris í starfslok.
- og margt fleira.
Fyrir fólk á öllum aldri – ekki síst ungt fólk
Verðmætasta eignin er í senn aðgengileg og skemmtileg aflestrar. Fyrirhyggja í lífeyrismálum er nauðsynleg og þess vegna á bókin erindi til allra þeirra sem vilja fara trausta leið að fjárhagslegu öryggi. Höfundur bókarinnar er Gunnar Baldvinsson framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins.
Ummæli um bókina
„Frábær samantekt um lífeyrissjóði og lífeyrissparnað.Gunnar gerir flókið viðfangsefni aðgengilegt og auðskilið. Skemmtilesning sem allir eiga að renna augum yfir. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið.“
Ásmundur Stefánsson, ríkissáttasemjari og fyrrverandi forseti ASÍ
„Það er ljóst að hér hefur verið unnið mikilvægt starf um málefni þar sem við Íslendingar stöndum öðrum þjóðum framar. Höfundur hefur unnið gott verk og afraksturinn er vel samsett og upplýsandi bók sem ætti að vera til á öllum heimilum.“
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans
„Ég get hiklaust mælt með þessari bók. Fyrirhyggja í lífeyrismálum er nauðsynleg og þess vegna er bókin, sérstaklega kærkomin fólki á öllum aldri. Kærar þakkir fyrir góða bók sem er í senn aðgengileg og skemmtileg aflestrar.“
Hrafn Magnússon,framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
Pantaðu bókina hér
Þú getur pantað bókina hér með því að senda okkur tölvupóst á netfangið almenni@almenni.is. Bókin kostar 3.400 kr.