Beint í leiðarkerfi

Lánabreytingar

Veðflutningur

Veð flutt af einni fasteign yfir á aðra. Meginreglan er að nýtt veð uppfylli lánareglur sjóðsins. Með umsókn þurfa að fylgja upplýsingar um nýtt veð (sambærilegar upplýsingar og þegar sótt er um nýtt lán).

Veðleyfi

Beiðni um að hleypa öðrum lánveitanda fram fyrir lífeyrissjóðinn. Meginreglan er að veðstaða lífeyrissjóðsins versni ekki eða að veðstaða standist kröfur sjóðsins þegar nýtt lán er veitt. Með umsókn þarf að fylgja greinargerð um beiðnina.

Skilmálabreyting

Beiðni um breytingu á greiðsluskilmálum getur verið beiðni um að lengja lánstíma eða flytja til gjalddaga. Reynt er að mæta óskum sjóðfélaga af sanngirni og er almenna reglan sú að breytingar á greiðsluskilmálum verði aldrei rýmri en á nýju láni. Með umsókn þarf að fylgja greinargerð um beiðnina. 

Skuldaraskipti (Skuldskeyting)

Verði skuldaraskipti á láninu og nýr skuldari er ekki sjóðfélagi fellur niður vaxtaálag/-afsláttur sem stjórn sjóðsins ákveður en í staðinn bætist við fast vaxtaálag sem er 2,0 prósentustig.