Beint í leiðarkerfi

Langtímalán

Langtímalán

  • Breytilegir vextir eða fastir vextir, sjá vaxtakjör til hliðar
  • Hægt að greiða inn á lánið hvenær sem er
  • Ekkert uppgreiðslugjald
  • Lán með jöfnum afborgunum
  • Lán með jöfnum greiðslum

Lán með jöfnum afborgunum

  • Hentar þeim sem ráða við hærri greiðslubyrði
  • Hagstæðari til lengri tíma en jafngreiðslulán

Þegar lán eru með jöfnum afborgunum þá er höfuðstólnum dreift jafnt á fjölda afborgana en vextir eru greiddir til viðbótar. Þá greiðir lántakandi hærri heildargreiðslur til að byrja með en síðan lækkar heildargreiðslan eftir því sem vextir af höfuðstól lækka. Hægt er að velja á milli fastra vaxta eða breytilegra vaxta.

Ath. ekki er gert ráð fyrir verðbólgu

 

Lán með jöfnum greiðslum (annuitets lán)

  • Hentar þeim sem kjósa jafna greiðslubyrði allan lánstímann
  • Hentar þeim sem vilja lægri greiðslubyrði í upphafi

Með jafngreiðsluláni greiðir lántakandinn alltaf sömu upphæði á hverjum gjalddaga, en greiðir hinsvegar mismunandi hlutfall vaxta og höfuðstóls. Til að byrja með er hlutfall vaxta mjög hátt en smátt og smátt eykst hlutfall höfuðstóls eftir því sem líður á lánstímann. Hægt er að velja á milli fastra vaxta eða breytilegra vaxta.

Ath. ekki er gert ráð fyrir verðbólgu