Lánsgögn
Með umsókninni þurfa að fylgja eftirfarandi upplýsingar um húsnæðið.
- Nýtt veðbókarvottorð.
- Greiðslumat frá viðskiptabanka eða sparisjóði
- Afrit af síðustu greiðslukvittunum af þeim lánum sem hvíla á undan
- Afrit af tryggingabréfum sem hvíla á eigninni.
- Afrit af þinglýstum kaupsamningi hafi eignin skipt um eigendur á síðustu þremur árum.
- Fasteignamat eða verðmat frá löggiltum fasteignasala (í samráði við starfsmenn sjóðsins). Lántakandi greiðir kostnað við sölumatið.
- Upplýsingar um brunabótamat.
- Afrit af skilmálum fyrir viðbótarbrunatryggingu. Í skilmálum tryggingarinnar þarf að koma fram að ekki sé heimilt að breyta tryggingunni nema með samþykki Almenna lífeyrissjóðsins.
- Húseignir í smíðum þurfa að vera komnar með fokheldisvottorð ásamt smíðatryggingu og kvittun fyrir greiðslu gatnagerðargjalda.
Ef sótt er um lán með veði í sumarhúsi skulu fylgja sömu upplýsingar og farið er fram á hér að ofan en til viðbótar er farið fram á eftirfarandi gögn:
- Verðmat frá fasteignasala sem sjóðurinn viðurkennir þarf alltaf að fylgja umsóknum auk staðfestingar fasteignasalans um að hann hafi farið á staðinn og skoðað aðstæður.
- Afrit af lóðarleigusamningi.
- Staðfesting á að sumarhús sé tryggt gegn tjóni, öðru en brunatjóni.
Almenni lífeyrissjóðurinn áskilur sér rétt að óska eftir öðru verðmati frá löggiltum fasteignasala sem sjóðurinn tilnefnir. Ef verðmat sem fylgir með umsókn er 20% hærra en fasteignamatið fer sjóðurinn alltaf fram á annað sölumat frá fasteignasala sem sjóðurinn tilnefnir.
Sjóðurinn áskilur sér rétt til að fá annað verðmat frá löggiltum fasteignasala, sem sjóðurinn tilnefnir. Lántaki greiðir kostnað við eitt sölumat.
Lántakanda ber að leggja fram yfirlit yfir skuldastöðu í lánastofnunum auk afrits af skattframtali, óski sjóðurinn eftir því. Komi í ljós að skuldastaða sé með þeim hætti að vafi leiki á greiðsluhæfi lántakanda getur sjóðurinn lækkað umbeðna lánsfjárhæð eða hafnað lánveitingu.
Umsókn ásamt fylgiskjölum á að skila á skrifstofu Almenna lífeyrissjóðsins, Borgartúni 25, Reykjavík. Gera má ráð fyrir að afgreiðsla lánsumsókna taki um viku, þó svo að leitast verði við að afgreiða umsóknir innan þriggja daga.