Beint í leiðarkerfi

Lífeyrislán

Lífeyrislán

  • Mánaðarlegar útborganir í stað einnar útborgunar lánsins í upphafi
  • Hentar lífeyrisþegum og öðrum sem eiga skuldlitla fasteign
  • Hentar þeim sem vilja bæta við ráðstöfunartekjur sínar
  • Breytilegir vextir eða fastir vextir, sjá til hliðar
  • Einungis greiddir vextir af þeirri fjárhæð sem hefur verið greidd út á hverjum tíma
  • Skerðir ekki greiðslur frá Tryggingastofnun
 Lífeyrislán eru greidd út mánaðarlega að hámarki í 10 ár. Hægt er að velja á milli fastra vaxta eða breytilegra vaxta. Lífeyrislán hentar sérstaklega vel fyrir lífeyrisþega sem eiga fasteignir sem þeir vilja búa í áfram. Með Lífeyrisláni er hægt að minnka við sig eignarhluta og bæta við eftirlaunin.

Í lok lánstímans er lánið greitt upp, framlengt eða breytt í langtímalán. Lántökugjald er 0,5%, stimpilgjald er 1,5% og kostnaður við að útbúa skuldabréf kr. 2.800.