Beint í leiðarkerfi

Iðgjöld og mótframlag

Skipting iðgjalda milli launþega og launagreiðanda

  • Lágmarksiðgjald í Almenna lífeyrissjóðinn er 12% af launum
  • Skipting á milli launagreiðanda og launþega fer eftir kjarasamningi eða ráðningarsamningi. Oftast greiðir launþegi 4% og launagreiðandi 8%
  • Launagreiðandi greiðir oftast 2% mótframlag í viðbótarlífeyrissparnað á móti a.m.k. 2% sparnaði launþega

Samkvæmt lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða er launagreiðanda skylt að draga lífeyrissjóðsiðgjald mánaðarlega af launum og skila því til viðkomandi lífeyrissjóðs eða vörsluaðila lífeyrissparnaðar, samkvæmt beiðni launamanns. Gjalddagi iðgjalds er tíundi dagur næsta mánaðar eftir að launatímabili lýkur. Eindagi iðgjalda er síðasti virki dagur næsta mánaðar eftir að launatímabili lýkur. Sé greitt eftir eindaga reiknast dráttarvextir frá gjalddaga.

Lágmarksiðgjald

Lágmarksiðgjald er 12% af heildarlaunum sjóðfélaga. Til iðgjaldsstofns skal ekki telja hlunnindi sem greidd eru í fríðu, svo sem fatnaður, fæði og húsnæði, eða greiðslur sem ætlaðar eru til endurgreiðslu á útlögðum kostnaði, t.d. ökutækjastyrkur, dagpeningar og fæðispeningar. Sjálfstæðir atvinnurekendur greiða 12% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Skylt er að greiða í lífeyrissjóð frá 16 ára aldri til sjötugs og er algengast að launþegi greiði 4% og launagreiðandi 8%. Í Almenna lífeyrissjóðnum greiðist lágmarksiðgjald bæði í samtryggingar- og séreignarsjóð.

Viðbótariðgjald

Launþegum er heimilt að greiða allt að 4% af launatekjum í lífeyrissparnað til viðbótar þeim 4% sem ber að greiða í lífeyrissjóð. Launagreiðanda er skylt að draga viðbótariðgjaldið af launþeganum og greiða til þess vörsluaðila lífeyrissparnaðar sem launþeginn velur. Í langflestum kjarasamningum hafa launþegar samið um 2% mótframlag ef launþeginn sparar 2%-4% af launum.

Öll iðgjöld umfram 10% lágmarksiðgjald eru skráð sem viðbótariðgjöld.