- Við veitum launagreiðendum faglega ráðgjöf um lífeyrismál
- Við aðstoðum fyrirtæki við að finna lausnir á lífeyrismálum starfsmanna sinna
- Við bjóðum upp á námskeið á vinnustöðum um lífeyrismál
- Við veitum ráðgjöf vegna eftirlaunasamninga eða starfsloka
Almenni leggur áherslu á góða þjónustu
Almenni lífeyrissjóðurinn leggur áherslu á að veita fyrirtækjum, sem greiða í sjóðinn fyrir starfsmenn sína, góða þjónustu og faglega ráðgjöf um lífeyrismál. Þannig vill sjóðurinn aðstoða fyrirtæki við að tryggja starfsmönnum góð lífeyrisréttindi og tryggingavernd sem ver þá fyrir tekjumissi vegna slysa eða sjúkdóma í skemmri eða lengri tíma jafnframt því að tryggja fjölskyldum þeirra tekjur ef starfsmaður fellur frá.
Lífeyrismál eru mikilvæg mál
Öll fyrirtæki vilja greiða starfsmönnum sínum viðunandi laun og hjálpa þeim að tryggja sér öruggar tekjur í starfslok. Lífeyrismál eru alltaf að verða flóknari um leið og sparnaðarmöguleikum fer fjölgandi. Ráðgjafar Almenna lífeyrissjóðsins eru reiðubúnir að aðstoða stjórnendur fyrirtækja og umsjónarmenn starfsmannamála við að ráðleggja starfsfólki um lífeyrismál og eftirlaunasparnað.
Með því móti geta stjórnendur einbeitt sér að rekstri fyrirtækjanna og notið aðstoðar sérfræðinga í lífeyrismálum við að ráðleggja starfsfólki heilt í þeim efnum. Ráðgjafar okkar eru tilbúnir að heimsækja vinnustaði og halda námskeið eða fyrirlestur um þessi mál eða hitta einstaka starfsmenn og fara yfir málin með þeim.
Einnig veitum við stjórnendum fyrirtækja og umsjónarfólki starfsmannamála sértæka ráðgjöf um lífeyrismál og eftirlaunasparnað vegna ráðningarsamninga og starfslokasamninga.