Beint í leiðarkerfi

Skilagreinar

Margir möguleikar í iðgjaldaskilum

  • Skilagreinar á opnum vef á almenni.is
  • Innsending skráa úr launakerfum
  • Fastar skuldfærslur á kreditkort og greiðsluseðlar
  • Skilagreinar á pappír

Rafræn skil

Skilagreinar á almenni.is

Hægt er að senda inn skilagreinar á rafrænu formi frá opnu svæði á vefsíðu sjóðsins. Greiðslu skilagreinarinnar þarf að millifæra sérstaklega á reiknings sjóðsins.

Skilagreinar í tölvupósti

Í flestum launaforritum er verkliður sem útbýr skilagreinaskrá sem hægt er að senda með tölvupósti á netfangið skilagreinar@almenni.is.

Skilagreinar á xml-formi

Hægt er að senda skilagreinaskrá rafrænt til lífeyrissjóða. Til að skila inn þá þarf lykilorð og er hægt að senda inn beiðni á netfangið almenni@almenni.is og er það þá sent í pósti.

 

Aðrir möguleikar í iðgjaldaskilum

Skilagreinar á pappír

Skilagreinar á pappír má senda til sjóðsins með pósti eða á faxnúmerið 510-2550.

Föst greiðsla

Þeir sem greiða fasta fjárhæð mánaðarlega geta óskað eftir skuldfærslu á greiðslukort eða fengið sendan greiðsluseðil.