Beint í leiðarkerfi

Stéttarfélög

Iðgjöld til stéttarfélaga

Stéttarfélagsiðgjöld eru innheimt fyrir Sjúkrasjóð arkitekta og Félag leiðsögumanna.

Arkitektar

Sjúkrasjóður arkitekta er í samvinnu við Sjúkrasjóð VR. Iðgjöld í sjúkrasjóðinn eru 1,5% af launum og greiðast til Sjúkrasjóðs arkitekta. Upplýsingar um réttindi og umsóknir fást hjá Sjúkrasjóði VR.

Sjúkrasjóður arkitekta
Kennitala: 460183-0229
Kirkjusandi, 155 Reykjavík
Sími 440-4900, fax 440-4910

Iðgjaldagreiðslur:
Iðgjöld má greiða inn á reikning sjúkrasjóðsins hjá Íslandsbanka:  513-26-9994
• Gjalddagi - 10. dagur næsta mánaðar eftir launatímabil
• Eindagi - Síðasti dagur næsta mánaðar eftir launatímabil

Leiðsögumenn

Almenni lífeyrissjóðurinn tekur við eftirfarandi iðgjöldum fyrir Félag leiðsögumanna sem stofnaður var árið 1977. Iðgjöldin skal greiða með iðgjöldum í Almenna lífeyrissjóðinn.
• Félagsgjald er 1% af launum
• Sjúkrasjóður er 1,5% af launum
• Endurmenntunargjald er 0,25% af launum

Skilagreinar til Almenna lífeyrissjóðsins

Launagreiðendur geta sent skilagreinar til sjóðsins ýmist með rafrænum hætti, með tölvupósti eða á pappír.