Beint í leiðarkerfi

Lífeyrissjóður

  • Örorkulífeyrir er greiddur ef orkutap er metið 50% eða meira
  • Örorkulífeyrir er miðaður við áunnin lífeyrisréttindi og framreiknuð réttindi ef sjóðfélagi uppfyllir ákveðin skilyrði
  • Makalífeyrir er greiddur við fráfall sjóðfélaga í samtryggingarsjóði.
  • Makalífeyrir er helmingur af fjárhæð örorkulífeyris.
  • Fullur makalífeyrir er greiddur a.m.k. í tvö ár og helmingur í eitt ár til viðbótar
  • Barnalífeyrir er greiddur til barna öryrkja og látinna sjóðfélaga
  • Barnalífeyrir er greiddur til 20 ára aldurs barns
  • Barnalífeyrir er föst upphæð með hverju barni

Samtryggingarsjóður skiptist í þrjár deildir:

  • Eftirlaunadeild, sem ávaxtar iðgjöld til ellilífeyris 
  • Tryggingadeild, sem ávaxtar iðgjöld til áhættulífeyris og greiðir örorku-, maka- og barnalífeyri 
  • Lífeyrisdeild, sem greiðir ellilífeyri og makalífeyri til látinna lífeyrisþega