- Barnalífeyrir er greiddur með börnum sem óvinnufær eða látinn sjóðfélagi hefur haft á framfæri
- Barnalífeyrir er greiddur til 20 ára aldurs barns
- Fjárhæð með hverju barni var kr. 25.718 í febrúar 2009
- Inneign í séreignarsjóði skiptist á milli maka og barna skv. erfðalögum, þ.e. 1/3 inneignar skiptist milli barna ef erfðaskrá hefur ekki verið gerð
Barnalífeyrir er greiddur með börnum og kjörbörnum látins sjóðfélaga til 20 ára aldurs barns. Barnalífeyrir er greiddur ef sjóðfélaginn hafði greitt iðgjald í að minnsta kosti 24 mánuði síðustu 36 mánuðina fyrir andlát, notið elli- eða örorkulífeyris við andlátið eða öðlast rétt til framreiknings. Litið er á stjúpbörn og fósturbörn sem börn sjóðfélagans enda hafi hann framfært þau um árabil.
Sama rétt eiga börn örorkulífeyrisþega sem öðlast hefur rétt til framreiknings. Veiti fráfall eða örorka sjóðfélagans börnunum jafnframt rétt til lífeyris úr öðrum lífeyrissjóði er barnalífeyrir úr Almenna lífeyrissjóðnum þá bundinn því skilyrði að sjóðfélaginn hafi síðast greitt iðgjöld til hans.
Barnalífeyrir er föst fjárhæð á mánuði sem er verðtryggð miðað við vísitölu neysluverðs. Eigi barn látins sjóðfélaga hvorki foreldri né kjörforeldri á lífi er greiddur tvöfaldur barnalífeyrir.