Beint í leiðarkerfi

Eftirlaun

Mikið svigrúm við töku lífeyris

  • Ellilífeyrir er greiddur bæði úr samtryggingar- og séreignarsjóði
  • Hægt er að hefja töku ellilífeyris úr samtryggingarsjóði á aldrinum 60-70 ára
  • Ellilífeyrir úr samtryggingarsjóði er greiddur til æviloka en fellur niður við andlát
  • Séreignarsjóður er laus til úttektar að fullu við 60 ára aldur og erfist við fráfall
  • Tekjuskattur er greiddur af lífeyrisgreiðslum en hægt er að nýta persónuafslátt

Ellilífeyrir úr samtryggingarsjóði

Fjárhæð ellilífeyrisgreiðslna úr samtryggingarsjóði ræðst af þeim iðgjöldum sem sjóðfélagi greiðir í sjóðinn á starfsævinni og af afkomu sjóðsins (ávöxtun og tryggingafræðilegu uppgjöri).

Heimilt er að hefja töku ellilífeyris úr samtryggingarsjóði á aldrinum 60 til 70 ára og er hann greiddur til æviloka. Viðmiðunaraldur ellilífeyris er 70 ára aldur og lækkar lífeyrir ef taka lífeyrisgreiðslna hefst fyrr.

Ellilífeyrir er borgaður út mánaðarlega með jöfnum greiðslum. Mánaðarlegur lífeyrir er verðtryggður og breytist í samræmi við vísitölu neysluverðs. Sækja þarf um ellilífeyri á sérstöku umsóknarblaði.

Við andlát fellur ellilífeyrir niður en eftirlifandi maki fær greiddan makalífeyri og börn undir 20 ára aldri fá barnalífeyri. Ef sjóðfélagi á engan maka og engin börn sem eru svo ung falla allar greiðslur vegna hans niður.

Sjóðfélagar geta reiknað dæmi um ellilífeyri úr samtryggingarsjóði miðað við mismunandi iðgjaldagreiðslur í sérstakri reiknivél á heimasíðu sjóðsins. Þeir fá sent yfirlit tvisvar á ári sem sýna dæmi um áætlaðan lífeyri frá 70 ára aldri.

Sjóðfélagar geta líka hvenær sem er fylgst með áætluðum lífeyrisgreiðslum í Netbanka og reiknað dæmi um ellilífeyrisgreiðslur miðað við mismunandi forsendur um iðgjaldagreiðslur eða hvenær þeir hefja lífeyrisgreiðslur.

Útborgun úr séreignarsjóði

Hefja má töku lífeyris úr séreignarsjóðum við 60 ára aldur og er hægt að taka út inneignina í einu lagi. Flestir velja sér þó að fá inneignina greidda út mánaðarlega og er greitt út fyrsta virka dag mánaðarins. Tekinn er tekjuskattur af útgreiðslu og er hægt að leggja inn skattkort til að nýta persónuafslátt.  Ef sjóðfélagi verður öryrki og verður sannanlega fyrir tekjumissi getur hann tekið inneign sína út á sjö árum.