Beint í leiðarkerfi

Skipting ellilífeyrisréttinda

Samkomulag milli hjóna

  • Heimilt er að skipta áunnum og/eða framtíðar ellilífeyrisréttindum á milli hjóna sem og lífeyrisgreiðslum
  • Uppfylla þarf ákveðin skilyrði til að skipting áunninna réttinda sé heimil
  • Skiptingin er varanleg og fellur ekki úr gildi ef annað hjóna fellur frá á undan hinu
  • Hægt er að segja upp samkomulagi um skiptingu framtíðarréttinda og lífeyrisgreiðslna

Samkvæmt heimild í lögum geta sjóðfélagi og maki hans gert með sér samkomulag um skiptingu ellilífeyrisréttinda. Um þrjá möguleika er að ræða.

  1. Skipting á þegar áunnum ellilífeyrisréttindum. Beiðni um skiptingu þarf að hafa borist a.m.k. sjö árum áður en taka ellilífeyris getur fyrst hafist úr aðildarsjóðum samningsaðila. Jafnframt er gert að skilyrði að sjúkdómar eða heilsufar dragi ekki úr lífslíkum samningsaðila. Skiptingin er óafturkallanleg og báðir aðilar eignast sjálfstæð ellilífeyrisréttindi.
  2. Skipting á framtíðarréttindum. Iðgjald sjóðfélaga rennur allt að hálfu til að mynda sjálfstæðan ellilífeyrisrétt fyrir maka eftir að samkomulagið er gert og þar til hjúskap, sambúð eða samvist er slitið.
  3. Skipting á ellilífeyrisgreiðslum. Ellilífeyrisgreiðslur renna allt að hálfu til maka eða fyrrverandi maka. Lífeyrissjóðurinn skiptir þá ellilífeyrisgreiðslum í samræmi við ákvörðun sjóðfélagans. Við fráfall sjóðfélagans falla greiðslur til maka niður. Við fráfall maka fær sjóðfélagi hins vegar greiddan fullan ellilífeyri.

 

Samkomulag um skiptingu ellilífeyrisréttinda er mögulegt að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

  • Samkomulagið skal einungis taka til skiptingar ellilífeyrisréttinda.
  • Réttur til skiptingar tekur til þeirra sem eru eða hafa verið í hjúskap, óvígðri sambúð eða staðfestri samvist.
  • Samkomulagið felur í sér gagnkvæma skiptingu réttinda og skal skiptingin vera jöfn, þ.e. hvort hjóna skal veita hinu sama hlutfall réttinda sinna. Heimilt er að framselja til makans allt að helmingi þeirra réttinda sem um ræðir. Skiptingin getur eingöngu tekið til áunninna réttinda meðan hjúskapur, óvígð sambúð eða staðfest samvist hefur staðið eða stendur.
  • Ef til staðar er samningur til skiptingar réttinda skv. möguleikum 2 og 3 getur hvor samningsaðila sagt samningnum skriflega upp með 3ja mánaða fyrirvara, enda standi aðrir samningar eða fyrirmæli því ekki í vegi. Ekki er hægt að segja upp samningi samkvæmt möguleika 1.


Hægt er að fá sendan heim samning um skiptingu ellilífeyrisréttinda. Hafðu samband og við sendum þér hann um hæl.