Beint í leiðarkerfi

Almennt um iðgjöld

Lífeyrisiðgjöld í Almenna lífeyrissjóðinn

  • Lágmarksiðgjald til Almenna lífeyrissjóðsins er 12% af launum. Af því greiðast 8% í samtryggingarsjóð og 4% í séreignarsjóð
  • Hámarks viðbótariðgjald launþega er 2% af launum
  • Framlag vinnuveitenda fer eftir kjarasamningum viðkomandi starfsstéttar
  • Ekkert þak er á framlagi vinnuveitenda
  • Endurhæfingarsjóður er 0,13% af launum 

Lágmarksiðgjald í Almenna lífeyrissjóðinn er 12% af launum og skiptist þannig að 4% greiðast í séreignarsjóð og 8% í samtryggingarsjóð. Viðbótariðgjald (iðgjald umfram 12% af launum) er greitt í sér­eignar­sjóð.

Aukið iðgjald

Sjóðfélagar geta aukið iðgjald í samtryggingarsjóð ef þeir vilja bæta við sig tryggingavernd. Hámarksiðgjald í samtryggingarsjóðinn er 15%. Stjórn sjóðsins er þó heimilt að hafna eða takmarka viðtöku iðgjalds umfram 12% af launum ef telja verður að skuldbindingar sjóðsins vegna sjóðfélagans myndu aukast veru­lega umfram verðmæti iðgjalda. Slík ákvörðun skal vera rökstudd með skriflegu áliti trygg­inga­fræðings sjóðsins.

Líf- eða heilsutrygging

Sjóðfélagar geta einnig varið hluta af viðbótariðgjöldum til að kaupa líf- eða heilsutryggingu hjá viðurkenndu líftryggingarfélagi.

Umframiðgjöld í séreignarsjóð

Ef sjóðfélagi fær greidd hærri iðgjöld en 12% af launum samkvæmt kjarasamningi eða ráðningarsamningi eru umframiðgjöld greidd í séreignarsjóð.