- Lágmarksiðgjald sjálfstætt starfandi arkitekta er 12% af launum
- Lágmarksiðgjald launþega sem eru í Launþegafélagi arkitekta og vinna eftir kjarasamningi félagsins er 12% af launum. Framlag starfsmanns er 4% og framlag vinnuveitanda er 8% af launum
- Mótframlag vinnuveitanda í viðbótarlífeyrissparnaði er 2%
- Að hámarki getur arkitekt lagt sjálfur fyrir 2% af launum í viðbótarlífeyrissparnað
- Endurhæfingarsjóður er 0,13% af launum
Viðbótarlífeyrissparnaður er hagkvæmastur
Vegna mótframlags launagreiðenda og hagstæðra skattareglna er viðbótarlífeyrissparnaður hagkvæmasta sparnaðarleið sem völ er á. Við ráðleggjum arkitektum eindregið að gera samning um lífeyrissparnað við Almenna lífeyrissjóðinn og greiða að minnsta kosti 2% viðbótariðgjald en þá fá þeir 2% mótframlag samkvæmt kjarasamningi.
Þar sem margir arkitektar eru sjálfstæðir atvinnurekendur þá er mikilvægt að kynna sér þá tryggingavernd sem í boði er og kanna hvort sé þörf að bæta við sig tryggingum.
Afkomutrygging
Til að bæta tryggingavernd vegna starfsorkumissis er sjóðfélögum ráðlagt að kaupa afkomutryggingu sem greiðir örorkubætur til 65 ára aldurs eða aðra tryggingu sem greiðir bætur við starfsorkumissi. Það er skattalega hagkvæmt að kaupa afkomutryggingu með milligöngu lífeyrissjóðsins.
Sjóðurinn hefur gert samkomulag við Sjóvá-Almennar líftryggingar hf. um að sjóðfélagar geti keypt afkomutryggingu með milligöngu sjóðsins. Iðgjöld afkomutryggingar eru skuldfærð mánaðarlega af viðbótariðgjaldi og eru því greidd af óskattlögðu fé. Hins vegar er greiddur tekjuskattur af tryggingabótum eins og öðrum launatekjum.
Sjúkra- og slysatrygging
Til viðbótar er skynsamlegt að bæta við sjúkra- og slysatryggingu og sjúkdómatryggingu og haga samsetningu viðbótarörorkutrygginga þannig að við starfsorkutap komi eingreiðsla til að nota fyrstu mánuðina eða árin meðan verið er að aðlagast nýju lífi og nýjum aðstæðum.
Fjárhæð eingreiðslubóta ætti að setja í samhengi við laun og miða við að bæturnar tryggi eins til tveggja ára laun. Með aldrinum minnkar þörfin á eingreiðslutryggingunum, eftir því sem eignir vaxa og skuldbindingar minnka.
- Afkomutrygging sem tryggir 70% af launum fyrstu 3 árin hjá þeim sem eru að hefja störf og 20-30% af launum eftir það
- Sjúkra- og slysatrygging sem greiðir ein árslaun við örorku
- Sjúkdómatrygging sem greiðir ein árslaun við greiningu alvarlegra sjúkdóma
- Líftrygging sem greiðir langtímaskuldir og a.m.k. tvenn árslaun
- Starfsábyrgðartrygging